Tóku rösklega til hendinni og safnaðist mikið af rusli
Það var mikil blíða í dag þegar nemendur og starfsfólk skólans gekk um bæinn og tíndi rusl. Flestir tóku rösklega til hendinni og safnaðist mikið af rusli. Við furðum okkur á því á hverju ári hvaðan allt þetta rusl kemur en það er augljóst að í nútíma samfélagi er mikið af úrgangi og mikilvægt að allir leggi hönd á plóg og hjálpist að við að halda umhverfinu hreinu. Margir nemendur höfðu orð á því að fólk mætti nú aðeins huga að því hverju það hendir frá sér á götum úti. Sumir smáhlutir eins og t.d. filterar af sígarettustubbum væri marga áratugi að eyðast í náttúrunni og það væri mjög sóðalegt að sjá þá liggja út um allt. Aðrir hlutir eyðast e.t.v. á skemmri tíma en þeir valda sjónmengun og við viljum ekki hafa þá. Á sama hátt og við viljum hafa snyrtilegt heima hjá okkur leggjum við áherslu á að hafa bæinn okkar hreinan og snyrtilegan. Þannig líður okkur betur og erum sáttari við okkur sjálf og umhverfið.
Hreinsunardagurinn markar á vissan hátt vorkomuna í Hafnarskóla því þá tökum við einnig til hendinni á skólalóðinni. Við sópum vellina þar sem mikið af mold og sandi hefur safnast saman yfir veturinn og tínum grastoppa úr beðum og gangstéttum.
Markmiðið með hreinsunardeginum er að leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð og stuðla að ábyrgri umgengni við líf og umhverfi. Námið er verklegt og auk þess að vera tilbreyting í daglegu skólastarfi þá þykir mörgum það skemmtilegra og læra meira.
Að lokinn ruslatínslunni bauð bærinn upp á grillaðar pulsur og sáu foreldrar um grillið. Pulsurnar runnu ljúflega niður enda útvistin góð trygging fyrir mikilli matarlyst.
- Hafnarskóli





Skrifa athugasemd