Apríl
Humarhótel og Matís opnað
Humarhótel og Matís opnað
Árni Mathiesen fjármálaráðherra og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís smakka á ferskum humri frá Humarhótelinu við opnun starfsstöðvar Matís á Höfn.
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

30.04.2007 Apríl

Fjármálaráðherra opnar starfsstöð Matís og humarhótel

Matís eflir rannsókna- og nýsköpunarstarf á Höfn

Árni Mathiesen fjármálaráðherra opnaði með formlegum hætti starfsstöð Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Humarhótel á Höfn í Hornafirði í dag. Við opnunina fengu ráðherra og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís að gæða sér á ferskum leturhumri frá Humarhótelinu. Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís sagði við opnunina að markmiðið með starfsstöð á Höfn væri að efla rannsóknastarf, skapa aðstöðu og vettvang til aukins samstarfs við atvinnulíf og stuðla að verðmætasköpun í samvinnu við matvælafyrirtæki á svæðinu. Þá sagði Hjalti Vignisson bæjarstjóri það mikilvægt fyrir svæðið að fá matvælarannsóknafyrirtæki eins og Matís til þess að efla þróunarstarf og stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi.

Á Humarhótelinu, sem er samvinnuverkefni Matís, Frumkvöðlaseturs Austurlands, Sæplasts, Hafrannsóknarstofnunar og Skinney Þinganess, er hægt að geyma lifandi leturhumar sem er veiddur úti á Hornafjarðardýpi. Humarinn er fluttur lifandi á hótelið þar sem hann er geymdur við kældar aðstæður. Hann er svo fluttur lifandi á markað erlendis.

Tilraunaverkefni um útflutning á lifandi leturhumri hefur staðið yfir undanfarin misseri og hefur humarinn nú þegar verið fluttur til Belgíu. Verkefnið hefur því gengið afar vel en tekist hefur að fá allt að því þriðjung hærra verð fyrir lifandi humar frá Höfn heldur en frystan humar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica