Efri hæð Pakkhúss boðin til leigu
Menningarmiðstöð Hornafjarðar, fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjörður óskar nú eftir tilboðum í leigu efri hæðar Pakkhúss. Leigutími er frá 1. júní til 30. september 2007. Á efri hæð Pakkhúss er 130 fermetra salur sem skiptist í eldhúskrók, sal og salernisaðstöðu. Pakkhúsið hefur verið mjög vinsæll staður fyrir ýmsar uppákomur svo sem tónleika, afmælisveislur, skemmtanir, fundi, árshátíðir svo eitthvað sé nefnt. Svo hefur Pakkhúsið að sjálfsögðu verið eitt að fþví sem hefur verið ómissandi á Humarhátíð. Útboðsgögn eru til afhendingar í Ráðhúsi og verður að vera búið skila þeim þangað aftur fyrir kl. 14:00 á föstudag.
Tilboðin verða opnuð kl. 14:30 sama dag á skrifstofu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í Nýheimum og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.




Skrifa athugasemd