Forréttindi að geta farið út á spegilsléttan Hornafjörðinn
Það eru forréttindi að hafa bát og geta farið út á spegilsléttan Hornafjörðinn og notið veðurblíðunnar eins og hún hefur verið undafarna daga. Jón Arason og Sigurður Þorsteinsson voru í gær að sjósetja við nýuppgerða Óslandsbryggjuna og ætluðu að skreppa eitthvað út í fjörð ásamt Ragnari Arasyni, án allra veiðarfæra, sögðu ekki von um að nokkra silungsveiði ennþá. Óslandsbryggjan var byggð upp í vor og er tilbúin til notkunar fyrir starfsemi Fjöruferða ehf. Innanfjarðarbátum hefur fjölgað með árunum enda margir sem njóta þess að skreppa í fjörðinn, sumir að leggja fyrir silung einkum þeir sem komnir eru vel yfir unglingsárin og enn eru einhverjir sem veiða lúru á vorin.
Lúru-og silungsveiði var mikið stunduð í Hornafirði og Skarðsfirði og hafði sá veiðiskapur mikla þýðingu fyrir Hornfirðinga einkum á fyrri hluta 20. aldarinnar, þá var þörfin fyrir þetta nýmeti mikil.





Skrifa athugasemd