Fyrsta ferð Fjöruferða á morgun
Fyrsta ferð Fjöruferða ehf verður á morgun laugardag kl.14.00 þá verður farið með 37 starfsmenn Ísnets í siglingu og fjöruferð þar sem gengið verður út í Hvanney. Starfsmenn Ísnets halda árshátíð sína á Hornafirði um helgina og er fjöruferðin liður í árshátíðarprógramminu. Auglýst var eftir starfsmönnum við Fjöruferðir og bárust sjö umsóknir allt frá mönnum ,,sem komnir eru til vits og ára´´ og erum við að ganga frá ráðningum sagði Haukur Sveinbjörnsson. Bátarnir eru allir komnir á staðinn og fjórhjólin koma hingað austur í kvöld svo allt verður tilbúið fyrir fjöruferðina á morgun.
Haukur sagði þá vera tilbúna til að fara með fólk í veiði út í fjörð ef þess er óskað og bætti við ,, við erum tilbúnir að veita sem besta þjónustu og auka fjölbreytni hennar þegar við erum komnir á stað með þetta´´.





Skrifa athugasemd