Apríl
Selur á Horni
Selur á Horni
Selurinn sem kom í heimsókn á verkstæðið á Horni (Mynd:Kolbrún Lilja Skúladóttir)

27.04.2007 Apríl

Selur á verkstæðinu á Horni

Það er ekki á hverjum degi sem selur kemur í heimsókn upp að bæjardyrum en það gerðist í gærkvöldi þegar Skúli Ingólfsson mætti í hesthúsin á Horni gefa hestunum að hann sá að þar var mættur selur fyrir utan verkstæðið. Selurinn var komin nokkuð langt frá sjó og ljóst að það var ekki auðvelt fyrir hann að rata aftur þangað. Hann var orðinn leirrauður eftir langa ferð í skurðinum sem er fyrir utan verkstæðið. Var ákveðið að fara með selinn aftur niður til sjávar.

Það tókst og selurinn var fljótur að stinga sér til sunds.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica