Apríl
Lundi í holu
Lundi í holu
Lundi í holu (@VJ)

26.04.2007 Apríl

Ferðir í Ingólfshöfða hafnar

Skoðunarferðir Öræfaferða í Ingólfshöfða eru byrjaðar. Í sumar verða þrjár ferðir alla daga vikunnar nema sunnudaga, farið er frá Hofsnesi kl.9.00-12.00 og 15.00 hver ferð tekur um 2 ½ klst. og kostar ferðin 2000 kr á mann og frítt er fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd foreldra.Ekki þarf að panta fyrirfram, aðeins að mæta á bílastæðið í Hofsnesi 10 mínútum fyrir auglýstan brottfarartíma. Lundinn er að byrja að láta sjá sig í höfðanum en heldur sig enn mest á sjónum segir Matthildur Þorsteinsdóttir sem ásamt manni sínum Einari Sigurðssyni reka Öræfaferða og eru leiðsögumenn í sögu-og útsýnisferðum út í Ingólfshöfða. Það er algengt að lundinn leiti út á sjó þegar hlýtt er í veðri og sólríkt og því er best fyrir þá sem eru aðallega að fara í fuglaskoðunarferðir út í höfða að fara þegar er rok og rigning.

Það eru nú 16 ár frá því að Sigurður bóndi í Hofsnesi fór að fara með fólk á heyvagni dregnum á dráttarvél út í Ingólfshöfða sem er um 6 km yfir sanda og bleytur. Sagt er að enginn gleymi ferð með Sigurði út í höfðann því hann kann þá list að hrífa áheyrendur sína og fá fólk til að hlusta með athygli á skemmtilegar og fræðandi frásagnir hans.Nú hefur Sigurður að mestu dregið sig í hlé bæði sökum heilsubrests og aldurs, þó hann beri aldurinn vel, svo nú hafa sonur hans og tengdadóttir tekið við og eru á góðri leið með að ná vinsældum Sigurðar í fararstjórn. Sigurður mun fara með í ferðir í höfðann í sumar ,,svona upp á punt´´eins og Matthildur segir, þegar hann getur og heilsan leyfir.

Allar nánari upplýsingar um þessar ferðir eru á www.hofsnes.com

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica