Apríl
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

26.04.2007 Apríl

Bjart framundan í ferðaþjónustunni

Aðalfundur Ferðamálafélags Austur Skaftafellssýslu var haldinn á Smyrlabjörgum síðasta vetrardag. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa kynnti Ari Þorsteinsson drög að stefnumótun og markaðsáætlun fyrir Ríki Vatnajökuls og er að afrakstur af verkefninu Hagvöxtur á heimaslóð sem unnið var að undanfarna mánuði. Allir þátttakendur í námsskeiðinu áttu kost á 10 ráðgjafartímum og kusu þeir aðilar sem ekki eru í beinum ferðaþjónusturekstri að nýta sína ráðgjafartíma sameiginlega í þágu allrar ferðaþjónustu á svæðinu. Sævar Kristinsson og Rögnvaldur Guðmundsson eru að vinna verkefnið og á fundinum var samþykkt að með þeim skyldu vinna auk Ara Þorsteinssonar, þau Jóna Ingólfsdóttir, Gísli Már Vilhjálmsson og Sigurlaug Gissurardóttir. Jafnframt voru kynntar hugmyndir að slagorði. Þegar endanlegar tillögur liggja fyrir verða þær kynntar á almennum félagsfundi og í framhaldi þess gengið frá formlegri stofnun verkefnisins Ferðamannaparadísin Suðausturland, sem er ferðaþjónustuklasi.

Verkefnið hefur þegar hlotið jákvæðan stuðning frá Vaxtarsamningi Austurlands að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Áður hefur verið greint frá stuðningi sveitarfélagins. Nú er það okkar ferðaþjónustuaðila að klára dæmið.

Á liðnu ári var starfssemi félagsins með hefðbundnu sniði s.s. þátttaka í sýningum, viðhald á vef og bæklingadreifing. Nokkrir fyrirlesarar komu til okkar á félagsfundi og fræddu okkur um m.a. möguleika á fræðslu fyrir ferðaþjónustuaðila, kynnt var skýrsla sem unnin hefur verið um aðgengi að jöklum, forsvarsmenn Hornfirska skemmtifélagsins kynntu starfssemi sína og fyrirætlanir svo að eitthvað sé nefnt. Ánægju og bjartsýni vekur sá kraftur sem er í ferðaþjónustunni. Ferðaþjónustuaðilar eru að færa út kvíarnar og nýir að reyna fyrir sér s.s. Fjöruferðir e.h.f og unnið er að standsetningu á humarveitingastað og fleira er í farvatninu. Allir þessir aðilar eru boðnir velkomnir í hópinn.

Stjórn félagsins er þannig skipuð: Formaður er Sigurlaug Gissurardóttir og er hann kosinn annað hvert ár og lýkur tíma sínum að ári. Aðrir í stjórn eru Guðbrandur Jóhannsson, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Einar Björn Einarsson. Í varastjórn eru Hafdís Roysdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Magnús Guðjónsson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica