Forvarnarmyndbönd hjá 8. bekk
Nemendur í 8. bekk Heppuskóla hafa í vetur unnið að forvarnarverkefni eins og gert hefur verið undanfarin ár. Í vetur hafa verið unnar stuttar auglýsingar eða stuttmyndir. Árganginum var skipt upp í átta hópa og tók hver hópur fyrir ákveðið atriði. Mánudaginn 23.apríl var afraksturinn síðan sýndur fyrir nemendur skólans og var ekki annað að sjá og heyra en að allir væru ánægðir með hvernig til hafði tekist. Í vetur var fengin til liðs við krakkana Hlynur Pálmason sem fengist hefur við stuttmyndagerð í mörg ár og hefur einnig menntað sig í kvikmyndagerð. Aðrir sem aðstoðuðu krakkana voru Björn Sigfinnsson tölvukennari við Heppuskóla og Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi.
Kynningu á forvarnastuttmyndum sem vera átti í kvöld fimmtudagskvöldið 26.apríl er frestað til miðvikudagins 2.maí. kl. 20:00. Þessi breyting er vegna beinnar útsendingar á úrslitum í Skólahreysti sem verður á Skjá Einum í kvöld kl.20:00 en þar er lið Heppuskóla í eldlínunni.
Hvetjum alla til að fylgjast með keppninni!





Skrifa athugasemd