Nýr veitingastaður með áherslu á humar opnar á Höfn í júní
HUMAR HÖFNIN nýr veitingastaður á Höfn verður opnaður í byrjun júní. Nafnið HUMAR HÖFNIN er lýsandi bæði fyrir það að aðaláhersla á matseðli verður á humri svo og staðsetningu veitingastaðarins sem er á Hafnarbraut 4, við höfnina á Höfn. Sjálft húsnæðið var áður í eigu Kaupfélags Austur-Skaftfellinga var lengi vel aðal verslunarhúsið á Höfn og síðustu ár hefur Kask verið með skrifstofur þar. Eigendur Humar Hafnar eru hjónin Anna Þorsteinsdóttir, sem er framkvæmdastjórinn, og Ólafur Vilhjálmsson ásamt hjónunum Maríu Gísladóttur og Ara Þorsteinssyni. HUMAR HÖFNIN býður bæði einstaklingum og hópum þjónustu. Hægt er að panta minni herbergi s.s. stjórnarherbergið, fundastofuna eða kaupfélagstjóraskrifstofuna fyrir smærri hópa á efri hæð en salur á neðri hæð tekur u.þ.b. 60 manns í sæti. Veitingahúsið sérhæfir sig í réttum þar sem notast er við svæðisbundið hráefni með aðaláherslu á leturhumri.
Starfsemin verður byggð á fáum réttum þar sem vöruþróun skipar stóran sess.
Áhersla verður lögð á að heimsókn í HUMAR HÖFNINA verði upplifun þar sem fara saman gastrónómía, fræðsla og upplýsingar um hráefnin.
Allt hráefni á matseðli er framleitt á svæðinu og getur því ekki ferskara orðið.
Opnunartímar verða alla daga vikunnar frá 12.00 - 22.00





Skrifa athugasemd