Apríl
FAS_1994-1995
FAS_1994-1995
Ein "gömul" mynd með (frá skólaárinu 1994-95) en á henni eru Arnór Fjölnisson, Gissur Jónsson og Hjalti Vignisson sem allir voru í Gettu betur liði skólans - á myndinni er líka Rósa Júlía Steinþórsdóttir sem varð fegurðardrottning Austurlands það árið. @FAS

24.04.2007 Apríl

20 ár frá því að FAS hóf formlega göngu sína

Þann 1. ágúst 2007 verða liðin tuttugu ár frá því að Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hóf formlega göngu sína. Af því tilefni hefur verið ákveðið að gera starfsárið 2006 - 2007 að sérstöku afmælisári. Skipuð hefur verið afmælisnefnd sem í eiga sæti Eyjólfur Guðmundsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjördís Skírnisdóttir og Zophonías Torfason. Ákveðið var að búa til afmælisvef þar sem komið yrði fyrir efni sem unnið verður í tilefni afmælisins. Kennarar í tveimur áföngunum sem kenndir voru á haustönn unnu einnig verkefni sem tengjast afmælinu. Þetta eru áfangarnir SAG403 sem Sigurgeir Guðjónsson kennir og í lífsleikni, LKN103, sem þær Hildur Þórsdóttir og Hjördís Skírnisdóttir kenna. Í sögu var unnið efni úr Eystrahorni en í lífsleikni voru tekin viðtöl við fyrrverandi nemendur og starfsmenn. Þessi verkefni birtast hér á vefnum.

Hér er þó ekki um lokaútgáfu á vefnum að ræða því áformað er að bæta við hann ýmsu efni. Líklegt er að einhverjar villur hafi slæðst með í texta og er beðist velvirðingar á því. Einnig er líklegt að fjölmargir eigi efni eða minningar sem eiga heima á þessum vef og er sérstaklega óskað eftir því að þeir komi því til nefndarinnar hvort sem það er fullunnið eða ekki.

www.fas.is

Afmælisvefur FAS


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica