Apríl
Þrír undir sama þaki
Þrír undir sama þaki
Þrír undir sama þaki (@RE)
Mynd 1 af 3
1 2 3

24.04.2007 Apríl

Þrír undir sama þaki í Fífunni

Ferðasýningin sumarið 2007 var haldið í Fífunni í Kópavogi um síðastliðna helgi, ásamt sýningunni sumarhúsið og garðurinn og stórri golfsýningu. Hornfirðingar mættu sterkir til leiks og voru með tvo bása. Einn sameiginlegan með Austurlandi að venju og annann þar sem sérstök áhersla var lögð á að kynna Unglingalandsmótið sem verður haldið hér um Verslunarmannahelgina. Boðið var upp á glænýjan lakkrís frá Freyju og kalt vatn að drekka sem hvort tveggja rann ljúft niður í maga sýningargesta. Margir lögðu leið sína í Fífuna þessa helgi því þarna var margt áhugavert að sjá. Gestum bauðst að taka þátt í gestaleik og svara léttum spurningum um Unglingalandsmótið og Vatnajökul og tóku
6-700 manns þátt í honum. Dregið verður úr réttum svörum næstu daga og gjafabréfum komið til vinningshafa. Vinningarnir eru gefnir af Ferðaþjónustuaðilum hér á svæðinu og eru í formi ýmissar afþreyingar.

Einnig gáfu ferðaþjónustuaðilar vinninga í spurningaleik sýningarinnar, sem var í gangi hjá öllum aðilum á ferðasýningunni. Þátttaka í svona sýningu er mikil framkvæmd og góður árangur næst ekki nema með góðri samvinnu margra aðila.

Í heild teljum við að vel hafi tekist til með þessa sýningu og vonum að hún eigi eftir að skila okkur mörgum ánægðum ferðamönnum og landsmótsgestum.



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica