Apríl
Ferðaþjónustubændur funda
Ferðaþjónustubændur funda
Ferðaþjónustubændur funda (@Smyrlabjörg)
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

24.04.2007 Apríl

Ferðaþjónustubændur funda

Aðalfundir Félags ferðaþjónustubænda sem er hagsmunafélag ferðaþjónustubænda á Íslandi og Ferðaþjónustu bænda h.f. sem rekur samnefnda ferðaskrifstofu voru haldnir á Smyrlabjörgum í Suðursveit dagana 15. og 16. apríl. Fundirnir voru mjög vel sóttir, þrátt fyrir að vitað sé um allmarga aðila sem sáu sér ekki fært að mæta vegna anna enda ferðamannatíminn alltaf að lengjast, hægt og bítandi. Mikil gróska er í starfi félaganna, árlega bætast við nýir bæir og fjölbreytni í þjónustu eykst, en auk gistingar og veitinga eru sífellt fleiri sem bjóða upp á einhvers konar afþreyingu. Það ánægjulegasta er þó að víða er næsta kynslóð að koma inn í eða taka við rekstri sem foreldrar þeirra stofnuðu til, í sumum tilfellum í árdaga ferðaþjónustu á vegum bænda. Það sýnir okkur að unga fólkið telur framtíð í ferðaþjónustu og að hún er að skjóta styrkum stoðum undir búsetu í sveitum.

Á vegum félags ferðaþjónustubænda er haldið úti markvissu gæðastarfi, unnið að margskonar vöruþróunarverkefnum og árlega er bændum boðið upp á ýmiss konar fræðslu og skoðunarferðir sem víkkar sjóndeildarhringinn og eykur hæfni þeirra til að gera sífellt betur. Rekstur ferðaskrifstofunnar sem vaxið hefur hægt en örugglega, stendur á traustum grunni og er orðið leiðandi afl í sölu og markaðssetningu á ferðaþjónustu í dreifbýli. Á haustdögum verður ráðist í stefnumótun sem tekur til áranna 2008 - 2018 og verður spennandi að taka þátt í og fylgjast með þeirri vinnu.

Að venju buðu heimamenn til skoðunarferða um nágrennið. Fyrst lögðu fundargestir leið sína að Fláajökli, þar sem unnið er að nýjum áningarstað ferðamanna með lagningu gönguleiða og gerðar svokallaðrar "kaldrar gestastofu." Þar tóku á móti okkur félagar úr karlakórnum Jökli og sungu nokkur lög og boðið var upp á jökulbláar veitingar bornar fram af fjölskyldunni í Hólmi, en kalda gestastofan verður í landi Hólms. Fundarmenn voru upplýstir um áform og væntingar til Vatnajökulsþjóðgarðs sem og þau margvíslegu áhrif sem jökullinn hefur haft á landmótun og mannlíf. Síðan lá leiðin í Þórbergssetur og þegar ekið var eftir Suðursveitinni endilangri fræddi Fjölnir bóndi á Hala fundarfesti um söguna fyrr og nú og rifjaði upp sögur og rakti ættir merkra einstaklinga. Þórbergssetur vakti í senn undrun og aðdáun og margir aðdáendur meistara Þórbergs gengu um setrið sem væru þeir í annarlegum heimi. Slík voru hughrifin. Það er ekki einleikið hversu oft strandar í Suðursveit um þessar mundir og fregnir herma að alltaf séu það "góð strönd" Svo var einnig um þessa helgi. Um kvöldið snæddu fundargestir saman hátíðarkvöldverð og þá höfðu bæst í hópinn fleiri austur skaftfellskir ferðaþjónustuaðilar og var ánægjulegt hversu margir sáu sér fært að mæta þrátt fyrir annir og sýnir betur en nokkuð annað það ágæta samstarf og samheldni sem er í Ríki Vatnajökuls. Að loknu borðhaldi stigu síðan á stokk listamenn úr röðum Hornfirska Skemmtifélagsins. Þeir fluttu gamanmál og léku og sungu nokkur lög við góðar undirtektir. Flutningur þeirra vakti mikla aðdáun og áttu margir fundarmenn vart orð til að lýsa því hversu mikil auðlegð væri fólgin í því að á heimaslóðum væri völ svo stórkostlegum listamönnum. Eins víst er að þarna hafi myndast mikilvæg viðskiptasambönd. Margir fundarmanna nýttu ferðina til að skoða aðstæður hjá félögum sínum hér og í fundarlok höfðu nokkrir fundarmenn á orði að héðan færu þeir með milljóna hugmyndir í kollinum og gætu vart beðið eftir að komast heim til að hefja framkvæmdir.

- Sigurlaug Gissurardóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica