Apríl
Ungbarnasund á Djúpavogi
Ungbarnasund á Djúpavogi
Ungbarnasund á Djúpavogi

23.04.2007 Apríl

Ungbarna- og barnasundnámskeið haldið á Djúpavogi

Fyrirhugað er að halda ungbarna- og barnasundnámskeið á Djúpavogi helgarnar 4.-6. maí og 18.-20. maí n.k. Að sögn Ágústu Margrétar Arnardóttur á Djúpavogi en hún á frumkvæðið að slíkt námskeið er haldið þari, er námskeiðið ætlað fyrir börnum á aldrinum 2ja mánaða til 6 ára. Ágústa hefur fengið til liðs við sig ungbarna- og barnasundkennara frá Reykjavík. Kennsla fer fram laugardaga og sunnudaga fyrir ungabörn 2-6 mánaða og 6-12 mánaða. Barnasund skiptist í 1-3 ára og 3-6 ára. Foreldrar eru með ofan í laug í öllum hópum. Námskeiðið er í átta skipti og kostar 10.000. Að sögn Ágústu þá vonast hún til þess að fá sem flesta af öllu Austurlandi og að foreldrar grípi þetta tækifæri til að komast á námskeiðið sem aðeins haldið á Djúpavogi.

Upplýsingar og skráning á námskeiðið er hjá Sóleyju Einarsdóttur Íþrótta og ungbarnasundkennara í síma 898-1496

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica