Apríl
Framsókn opnar kosningaskrifstofu
Framsókn opnar kosningaskrifstofu
Gísli Már matreiðslumeistari á Hótel Höfn og einn besti grillari landsins kennir Bjarna Harðarsyni tökin við grillið.
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

22.04.2007 Apríl

Grillað lambakjöt í Pakkhúsinu

Framsókn opnaði framboðsskrifstofu sína formlega í Pakkhúsinu á Höfn í gærkvöld kl 19.00. Frambjóðendur, með Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra í fararbroddi, buðu uppá grillað lambakjöt og meðlæti og til að allt yrði þetta fullkomið fengu þeir sér til aðstoðar matreiðslumeistara frá Hótel Höfn. Fjöldi fólks mætti í Pakkhúsið í kvöld og ef þetta er forsmekkurinn af fylgi flokksins eru þeir í góðum málum. Frambjóðendurnir sem mættir voru í pakkhúsið í kvöld voru Guðni Ágústsson, Bjarni Harðarson, Brynja Lind , Gissur Jónsson og Lilja Hrund Harðardóttir.

Framboðsskrifstofan verður í Kaupfélagshúsinu, Hafnarbraut 2. Opið verður á laugardögum kl.10-13 en aðrir opnunartímar verða auglýstir síðar.
Lilja Hrund sagði að sjálfsögðu yrði boðið upp á ilmandi framsóknarkaffi og meðlæti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica