Apríl
FAS_ Freyja heimsækir FAS
FAS_ Freyja heimsækir FAS
Freyja Haraldsdóttir í heimsókn í FAS þar sem hún hélt fyrirlestur. (Mynd FAS)

21.04.2007 Apríl

Freyja Haraldsdóttir í heimsókn í FAS

Í gær föstudag kom Freyja Haraldsdóttir í heimsókn í FAS og hélt fyrirlestur sem nefnist "Það eru forréttindi að lifa með fötlun". Freyja greindist við fæðingu með sjaldgæfa fötlun sem lýsir sér á þann hátt að beinin eru mjög stökk og brotna auðveldlega. Hún hefur því verið bundin hjólastól alla sína æfi. Freyja er í dag 21 árs og útskrifaðist frá FG í lok árs 2005. Í námi sínu þar vann hún m.a. verkefni í sálfræði þar sem hún lýsir því hvernig er að vera fötluð. Fyrirlesturinn vakti strax mikla athygli og varð kveikjan að því að kynningarátaki sem Freyja stendur nú fyrir.
Á yfirstandandi skólaári hefur Freyja heimsótt alla framhaldsskóla landsins og hitt bæði nemendur og kennara. Í fyrirlestri sínum lýsir Freyja hvernig það er að vera fötluð og hvernig samfélagið oft á tíðum begst við fötluðum einstaklingum.

Nánar má lesa um Freyju og kynningarátak hennar á forrettindi.is

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica