Apríl
Frjálslindi flokkurinn
Frjálslindi flokkurinn
Frjálslyndi flokkurinn opnaði kosningaskrifstofu sína á Höfn

20.04.2007 Apríl

Frjálslyndi flokkurinn með kosningaskrifstofu á Víkurbraut 2

Frjálslyndi flokkurinn opnaði kosningaskrifstofu sína á Höfn í dag föstudag og er hún til húsa á Víkurbraut 2, sama húsi og veitingastaðurinn Víkin. Þar voru mættir þeir Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins og Grétar Mar Jónsson oddviti Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi ásamt fleiri frambjóðendum. Þegar fréttamaður vefsins leit inn voru frambjóðendurnir að koma sér fyrir á skrifstofunni og gera sig klára í að kynna áherslur flokksins og ræða við heimamenn. Eflaust eru margir sem vilja koma þeim málefnum til frambjóðendanna sem brýnust eru fyrir sveitarfélagið.

Seinna verður tilkynnt um opnunartíma kosningaskrifstofunnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica