Apríl
Kosningaskrifstofa Samfylkingarinnar
Kosningaskrifstofa Samfylkingarinnar
Róbert Marshall, Árna Rúnar Þorvaldsson og Björgvin G. Sigurðsson við opnun kosningaskrifstofunnar.
Mynd 1 af 2
1 2

20.04.2007 Apríl

Samfylkingin opnar kosningaskrifstofu

Samfylkingin opnaði kosningaskrifstofu að Hafnarbraut 34 (húsi Efnalaugar Dóru) í gær sumardaginn fyrsta. Mættir voru á staðinn frambjóðendurnir Björgvin G. Sigurðsson, Róbert Marshall ásamt Árna Rúnari Þorvaldssyni, okkar manni hér heima. Fjöldi manns kom að hitta frambjóðendurna og helstu baráttumálin rædd. ?Arni Rúnar sagði að mest hefði verið rætt um atvinnumál ,byggðamál og samgöngumál. Boðið var upp á kaffi og meðlæti ásamt hinu og þessu ,,smálegu´´ sem á að minna fólk á að setja xið á réttan stað þegar gengið er í kjörklefann.



Opnunartími kosningaskrifstofunnar verður auglýstur einhvern næsta dag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica