Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar áformum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar var gerð eftirfarandi bókun og er ekki úr vegi að hún birtist hér á vefnum í dag Sumardaginn fyrsta. Bókunin var eftirfarnandi: Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar áformum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem verður stærsti sinnar tegundar í Evrópu. Þjóðgarðurinn mun hafa ótvírætt gildi á heimsvísu, skapa Íslandi sérstöðu og skerpa ímynd þess á alþjóðavettvangi, verði rétt á málum haldið. Bæjarstjórn leggur mikla áherslu á að staðið verði við áform um uppbyggingu þjónustunets og aðgengis og að ávallt verði tryggt nægjanlegt fjármagn í viðhald og rekstur, auk þess sem frá upphafi verði komið á skilvirk öryggisskipulagi. Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við heimamenn sem og aðila annarra rekstrarsvæða um setningu reglugerðar fyrir þjóðgarðinn.
Bæjarstjórn óskar Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum til hamingju með gestastofu í Ásbyrgi sem verður hluti af hinum nýja Vatnajökulsþjóðgarði.





Skrifa athugasemd