Landsbankamenn heimsækja Hornafjörð
Starfsmenn frá Landsbanka Íslands komu til Hornafjarðar sl. mánudag og hittu m.a bæjarstjóra, helstu ráðamenn sveitarfélagsins og ferðaþjónustuaðila. Þetta voru menn frá fyrirtækjasviði LÍ sem að sögn Jónu Ingólfsdóttur bankastjóra LÍ á Höfn komu til að skoða svæðið og möguleika á uppbyggingu hér.,, Það er enginn vafi á að það er mikill áhugi og væntingar á svæðinu til ferðaþjónustunnar, segir Jóna, og bankinn vill fylgjast með þeim málum.Við fáum beiðnir inn á borð til okkar um fjármögnun í atvinnurekstur sem tengist ferðaþjónustu og það hefur aukist mikið núna síðan gefið var út að Vatnajökulsþjóðgarður yrði að veruleika. Bankinn vill því vera í startholunum og við viljum skoða hvort hann vill ekki vera með í þeirri uppbyggingu með heimamönnum og þá erum við að tala um fjármögnun. Mér fannst þetta mjög gagnleg heimsókn og þeir voru himinlifandi yfir hvað allir hér eru jákvæðir og fullir bjartsýni´´.
Jóna segir að innan skamms verði birt skýrsla um könnun og álit sérfræðinganna frá Landsbank Íslands úr heimsókn þeirra til Hornafjarðar




Skrifa athugasemd