Kaupir kýr og kvóta í Einholti
Lífsval ehf. sem á síðasta ári keypti jörðina Flatey á Mýrum er byrjað á undirbúningi fyrir starfsemi á jörðinni og hefur ráðið Reyni Sigursteinsson til undirbúningsstarfa þar. Við erum að undirbúa hvað við ætlum að gera þarna segir Jón Björnsson framkvæmdastjóri Lífsvals í viðtali við vefinn. ,,Við ætlum að fara af stað með mjólkurbú í Flatey í haust eða vetur en þetta er ennþá teikniborðinu hjá okkur og tekur lengri tíma, þetta er mál sem vel þarf að vanda til og ekki hefur verið tekin ákvörðun um hversu stórt búið verður. Við erum búnir að kaupa kýrnar af Friðriki í Einholti á Mýrum og kvótann þar og það er það sem við höfum til að byrja með . Það tekur langan tíma að vinna upp svona jörð sem hefur ekki verið í ræktun í lengri tíma og þetta þarf allt mikinn undirbúning, við ætlum að vanda okkur við þetta og það eru ekki margar jarðir á Íslandi eins og Flatey og þarna eru miklir möguleikar.
Jón er bjartsýnn á góða samvinnu við Hornfirðinga og segir þá hafa fengið mjög góðar móttökur hér.





Skrifa athugasemd