Apríl
Eyfi og Stebbi Hilmars í heimsókn á Lönguhólum
Eyfi og Stebbi Hilmars í heimsókn á Lönguhólum
Eyfi og Stebbi Hilmars í heimsókn á Lönguhólum @LL

17.04.2007 Apríl

Mikið um að vera á Leikskólanum Lönguhólum

Það vakti mikla kátínu hjá krökkunum á Leikskólanum Lönguhólum þegar Stebbi og Eyfi sem voru með tónleika á Hótelinu í síðustu viku komu á Lönguhóla og héldu þar tónleika fyrir börnin og starfsfólkið. Á tónleikunum tóku þeir nokkur lög og síðan sungu allir saman. Það er eins og venjulega mikið um að vera á Leikskólanum og eru m.a. þessa dagana tveir kennarar frá Þýskalandi í heimsókn hjá leikskólanum og taka þeir þátt í starfi skólans. Að sögn Margrétar Ingólfsdóttur leikskólastjóra þá er þetta liður í Evrópusamstarfi sem Lönguhólar taka þátt í ásamt skólum frá Þýskalandi og Svíþjóð, verkefnið er búið að vera í á fjórða ár og lýkur nú í maí á lokafundi í Svíþjóð þar sem fulltrúar Lönguhóla í verkefninu eru Margrét Ingólfsdóttir leikskólastjóri, Eyrún Axelsdóttir aðstoðarleikskólastjóri og Maríanna Jónsdóttir deildarstjóri.

Á hádegi á morgun miðvikudag fara allir í skólanum á Hótel Höfn í pizzu og ís en það er árviss viðburður hjá leikskólanum. Vetrarstarfi skólans líkur formlega föstudaginn 27. apríl og verður þá haldið upp á það í skólanum. Sumarstarf hefst mánudaginn 30. apríl með hefðbundnu hópastarfi eins og verið hefur en aukin vinna fer fram í stórum og litlum hópum. Þar sem sumarveðrið er komið fer kennsla fram að mestu leiti úti (ef veðrið leyfir). Í leikskólanum verður lögð áhersla á í starfinu það líf sem kviknar á sumrin hjá blómum, skordýrum og fuglum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica