Leggjum áherslu á persónulega þjónustu og afslappað andrúmsloft
Gistiþjónusta verður í Flatey á Mýrum í sumar svo sem verið hefur undanfarin ár en nú eru það hjónin Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir og Sigursteinn Haukur Reynisson sem þar ráða ríkjum. Okkur fannst upplagt að fara út í þetta og reka gistingu hér í sumar segir Sigrún, við erum bæði í námi og vantaði eitthvað að gera og þar sem ég er að læra ferðamálafræði var þetta tilvalið. Við verðum með gistipláss í tveim húsum og bjóðum uppá morgunverð og kvöldmat. Ég reikna með að á matseðlinum verði aðallega venjulegur íslenskur heimilismatur. Þó rétt sé byrjað að taka til í húsunum og undirbúa fyrir sumarið eru pantanir farnar að týnast inn og von er á fyrstu gestunum um miðjan maí. Okkur lýst ljómandi vel á þetta og hlökkum til sumarsins segir Sigrún, og við munum gera okkar besta til að gestunum líði vel hér og við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og afslappað andrúmsloft.
Boðið er uppá gistingu fyrir 15 manns í eins til þriggja manna herbergjum með fallegu útsýni , einnig er boðið uppá svefnpokapláss. Bærinn stendur 200m frá þjóðvegi 1, 36km vestan við Höfn í Hornafirði og 100 km austan við Skaftafell. Flatey er frábærlega staðsett til skoðunarferða um Austur-Skaftafellssýslu og Suðausturland. Skipulagðar skoðunarferðir og aðra afþreyingu er gott að sækja úr Flatey. Til dæmis njóta Skaftafell, Hvannadalshnjúkur, Jökulsárlón, Vatnajökull, Höfn og Lónsöræfi mikilla vinsælda meðal ferðamanna á Suð-Austurlandi





Skrifa athugasemd