Apríl
Díana með Mjöll og óskirðan
Díana með Mjöll og óskirðan
Díana (dóttir Einar Björns Einarssonar) með Mjöll og óskirðan. Hvolparnir sem eru á myndinni eru af ekta smalahundakyni og verður móðir þeirra á námskeiðinu en þeir eru of ungir og verða því að láta sér nægja að leika sér í nýja hundakofanum sínum.

14.04.2007 Apríl

Smalahundanámskeið haldið í Nesjum

Í dag og á morgun frá kl.10-18 verður haldið námskeið á Hornafirði á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir þá sem vilja læra undirstöðuatriði við tamningu fjárhunda. Mæting er í Árnanesi kl.10.00. en verkleg kennsla fer fram inn við Laxárdalsrétt og síðar í dag verður kennsla í fyrirlestrarformi. Grétar Þorkelsson sér um að skipuleggja og undirbúa námskeiðið en kennari er Gunnar Einarsson á Daðastöðum. Grétar segir að hér séu nokkrir mjög góðir smalahundar sem taka þátt í smölunum og það muni öllu fyrir þá sem sjá um að smala þessi svæði hér sem séu þau erfiðustu á landinu. Búið er að skrá níu hunda á námskeiðið en hámarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið er 10 og lágmarksaldur hunda er 6 mánaða. Þátttakendur vinna með eigin hund á námskeiðinu. Kennsla er að mestu verkleg en að auki eru haldnir fyrirlestrar um notkun fjárhunda.

Námskeiðið nýtist eigendum Landamæra-Collie (Border-Collie) hunda best en eigendur annarra hunda geta einnig haft gagn af námskeiðinu.
Hundar sem koma á námskeiðið skulu vera bólusettir við smáveirusótt (smitsjúkdómur) og skal bólusetningin ekki vera eldri en 2 ára og ekki yngri en 10 daga. Hugsanleg smithætta er á ábyrgð hundaeigenda. Hundar skulu einnig vera ormahreinsaðir og skal sú hreinsun ekki vera eldri en 12 mánaða.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica