Krump-dans í Leikskólanum Krakkakoti
Óvæntir gestir komu til okkar í heimsókn í morgun sagði Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri Krakkakots. Það voru þær Sandra og Rossie danskennarar sem komu til okkar og sýndu okkur skrítinn og skemmtilegan dans. Dansinn er kallaður Krump og þær sögðu okkur að það væri frábært að dansa hann þegar við verðum leið og fúl því að þegar við byrjum að dansa þá verðum við glöð og jákvæð og allt verður miklu skemmtilegra. Þegar þær voru farnar þá fóru allir út á gólfið og fengu mikla útrás í dansinum og voru tilþrifin þvílík að unun var að sjá börnin (og starfsfólkið) hamast á gólfinu við tónlistina.
Sem sagt gaman, gaman í Leikskólanum Krakkakoti.





Skrifa athugasemd