Tvö útköll slökkviliðs um páskana
Tvö útköll voru hjá Slökkviliði Hornafjarðar í páskavikunni, fyrra útkallið var kl 2.30 aðfara nótt föstudagsins langa vegna mikils reyks í íbúð í Ekru, þar sem íbúðir aldraðra eru.. Í einni íbúðinni hafði húsráðandi verið að elda og gleymt að slökkva á eldavélinni áður en hann fór að sofa. Skemmdir urðu ekki á íbúðinni en nokkur óhreinindi af reyk og íbúinn slapp með væga reykeitrun. Seinna útkallið var á páskadag en þá höfðu krakkar kveikt í rusli við Bugðuleiru. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri vill minna fólk á að nú er kominn sá tími að mikil hætta er á sinubrunum ef ógætilega er farið með eld og einnig að það er algjörlega bannað að kveikja í sinu nema með sérstöku leyfi sýslumanns. Það ætti ekki að þurfa að benda fólki á það tjón sem sinueldar geta valdið og óþægindi leggi reykinn yfir hús og vinnusvæði og segir Steinþór að kostnaður slökkviliðsins við útköll vegna sinubruna sé umtalsverður á hverju vori .
Fjögur útköll eru komin það sem af er þessu ári og mest varð tjón í brunanum á Hótel Höfn.





Skrifa athugasemd