Skoðuð voru nes og eyjar, víkur og vogar
Góð þátttaka var í síðdegisferð Ferðafélagsins síðastliðinn miðvikudag, rúmlega 30 manns. Ekið var að Þinganesi þar sem að Halldór Einarsson og fjölskylda tók á móti okkur. Skoðuð voru nes og eyjar, víkur og vogar. Þarna er mikill fjölbreytileiki í landslagi og lífríki. Á þessum slóðum eru ýmsir merkir sögustaðir, svo sem Skeggey, Gálgaklettur og Gvendarbrunnur. Í lok ferðar fengum við að skoða nýfædda hvolpa sem voru voða voða sætir. Næsta ferð verður laugardaginn 14. apríl, en þá verður gengið um Hjallanes í Suðursveit. Leiðsögumaður verður Þorsteinn Sigfússon á Skálafelli. Lagt verður af stað frá tjaldstæðinu kl. 10.00
Aðalfundur félagsins verður haldin í fundarsal Frumkvöðlasetursins í Nýheimum þriðjudaginn 10. apríl kl. 20.00
Mikil gróska er í starfsemi félagsins um þessar mundir og mörg spennandi verkefni framundan.
Nýir félagar eru hjartanlega velkomnir
- Rannveit Einarsdóttir




Skrifa athugasemd