Hægt að gera góð kaup á ýmsum munum á Hótel Höfn
Í dag kl. 15 gefst þeim sem vilja kostur á að gera góð kaup á ýmsum hlutum þegar Hótel Höfn ætlar að rýma til hjá sér fyrir nýjum vörum (búnaði). Það sem verður hægt að kaupa á mjög góðu verði eru m.a. lampar, speglar, myndir, strau bretti, straujárn, gardínur, rúmteppi, vaskar klósett og ljós. Salan stendur aðeins í tvo daga frá kl. 15-18. Að sögn Þórdísar Einarsdóttur hótelstjóra þá ganga framkvæmdir mjög vel og er eru þær samkvæmt áætlun eftir brunann sem varð á hótelinu í febrúar s.l. Reiknað er með að hótelið verði komið í fullan rekstur um næstu mánaðarmót. Þrátt fyrir framkvæmdir við endurbætur á Hótelinu þá var haldin fermingarveisla á hótelinu um síðustu helgi og á fimmtudag í næstu viku verða þeir félagar Stefán og Eyfi með tónleika á Hótelinu.
Ráðning á starfskrafti fyrir sumarið gengur vel og á bara eftir að ráða í tvær stöður í eldhúsi. En alls munu starfa hjá hótelinu í sumar 35 manns.





Skrifa athugasemd