Þeir sem hafa velt fyrir sér hvað þessi skótákn sem notuð eru í bækling Ferðafélagsins þýða þá er hér skýring á þeim. Skótáknin eru notuð til að flokka gönguferðir í nokkur erfiðleikastig, til þess að þeir sem hyggjast taka þátt í ferðum geti metið hve erfiðar þær eru. Í Ferðaáætlun Ferðafélags Íslanda 2007 er þessar skýringar að finna. 1 skór eru léttar og stuttar dagleiðir (yfirleitt 4-6 klst.) Mest gengið á sléttlendi, léttur dagspoki, engar, eða litlar ár og flestum fært. 2 skór eru miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5–7 klst.) Oft í hæðóttu landi, bakpoki þarf ekki að vera þungur, engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun. 3 skór eru nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.) Oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld, gengið í fjallendi, getur þurft að vaða erfiðar ár og þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun. 4 skór eru erfiðar og langar dagleiðir (jafnvel yfir 10 klst.). Gengið í fjalllendi með allt á bakinu – má búast með erfiðum ám – aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.
Lesa meira