Ríki Vatnajökuls - Mars
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Þrjár sýningar undir sama þaki.
      <description>Dagana 20. – 22. apríl 2007 verður stór sýning haldin í Fífunni  í Kópavogi.  Að þessu sinni sameinast á einn stað þrír aðilar sem áður hafa haldið hver sína sýningu.  Þetta eru Ferðasýningin 2007, Golf á Íslandi 2007 og Sumar 2007.  Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er gert hérlendis en er mörg dæmi eru um slíkt erlendis.  Samstarfsaðilar sýningarinnar eru Ferðamálasamtök Íslands, Golfsamband Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF)  Stefnt er að því að hér verði um alþjóðlega sýningu að ræða sem laðar að erlenda gesti til að kynna sér Ísland, íslenska ferðaþjónustu og ferðamál almennt.  Hér er um metnaðarfullan viðburð að ræða sem gestir geta kynnt sér flest það er snýr að útivist, ferðalögum og tómstundum.</description>
      <alt>Skaftafell</alt>
Humarhátíð haldin helgina 29. júní – 1. júlí
      <description>Ákveðið hefur verið að Humarhátíð okkar Hornafirðinga verði haldin helgina 29. júní – 1. júlí. Ástæðan fyrir því að þessi helgi varð fyrir valinu er sú að helgina eftir fer fram Landsmót UMFÍ í Kópavogi og þá fer stór hluti Sindramanna í Kópavoginn til þess að kynna Unglingalandsmótið sem haldið verður á Hornafirði um verslunarmannahelgina. Þess vegna var talið farsælast að halda Humarhátíðina þessa helgi. Aðstandendur hátíðarinnar verða að þessu sinni Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Bæjarráð Hornfjarðar ákvað fyrir skömmu að hækka fjárframlag bæjarins til Humarhátíðarinnar. Þessu aukafjárframlagi var sérstaklega ætlað að liðka til fyrir nefndinni svo hún gæti keypt vinnu. Humarhátíðarnefnd hefur nú þegar ráðið starfsmann í hlutastarf. Þessi ráðstöfun kemur til með að hjálpa til með alla skipulagningu fyrir hátíðina.</description>
Samfylkingin heldur aðalfund sinn í kvöld
      <description>Í kvöld kl. 20:00 heldur Samfylkingin á Hornafirði aðalfund sinn í húsi Vökuls við Víkurbraut. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem fulltrúar félagsins á landsfund Samfylkingarinnar 13. og 14. apríl verða kosnir. Gestir fundarins verða frambjóðendur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, þau Róbert Marshall og Guðný Hrund Karlsdóttir. Róbert er í þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar en Guðný í því fjórða. Þau ætla að nota tækifærið á þessum fundi til þess að kynna drög að stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar.</description>
      <alt>Aðalfundur</alt>
Ferðalangar brugðust rétt við er þeir fundu tundurdufl
      <description>Ferðalangar úr Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu sem fundu tundurdufl á Starmýrarrifi við Álftafjörð eystri brugðust hárrétt við en þeir tóku stað á duflinu og létu varðstjóra Landhelgisgæslunnar í Vaktstöð siglinga strax vita. Á sunnudaginn fékk Vaktstöð siglinga tilkynningu um að ferðalangar hefðu keyrt fram á tundurdufl á Starmýrarrifi við Álftafjörð eystri. Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar fékk upplýsingar hjá ferðalöngunum og myndir sem staðfestu að um breskt tundurdufl úr seinni heimstyrjöldinni var að ræða. Við athugun á duflinu sem fannst á sunnudaginn kom í ljós að reynt hafði verið að brenna sprengiefnið úr því en það ekki tekist fullkomlega. Sprengjusérfræðingur sá um að eyða leyfum af sprengiefni úr því. Er sprengjusérfræðingarnir voru á leiðinni að duflinu keyrðu þeir fram á annað dufl og grófu það upp. Það reyndist vera tómt.</description>
Uppskipun flutningadeildarinnar á heilu hóteli
      <description>Það er ekki á hverjum degi sem flutningadeild KASK skipar upp heilu hóteli en það stendur yfir þessa stundina. Að sögn Björns Jónssonar hjá flutningadeildinni þá kemur skipið með hótelið frá Noregi og er það í 79 einungum. Einingarnar eru settar á flutningabíl sem flytur þær til Núps sem er rétt austan við Kirkjubæjarklaustur og verður Hótelið rísa þar. Skipið lenti í aftakaveðri á leiðinni frá Noregi og fóru þrjár einingar í sjóinn. Eigandi hótelsins er fyrirtækið Íslandia Hótel sem er til heimilis í Reykjavik. Hótelið verður 60 berbergja hótel, fullbúið með veitingaaðstöðu og að sögn Vilhjálms Sigurðssonar eins eiganda fyrirtækisins þá er þetta eitt af mörgum hótelum sem fyrirtækið fyrirhugar er að reisa á landsbyggðinni.</description>
Lóan er komin til Hornafjarðar
      <description>Lóan er komin að kveða burt snjóinn. Í morgun sá Björn Arnarson fuglaáhugamaður og starfsmaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar Lóuna á flugi í Einarslundi í morgun um 7:30. Björn segir að þetta sé hennar tími því algengast er að hún komin hingað frá 24. til 28. mars. Að sögn Björns þá er þröstum farið að fjölga sem einnig er góður vorboði. Þeir félagar og fuglaáhugarmenn Brynjúlfur Brynjólfsson og Björn Arnarson mæta í Einarslund í morgunsárið til að setja upp fuglanet til að fanga fugla og merkja. Börn segir að merkingarnar fari rólega af stað og í morgun voru til dæmis merktir 11 fuglar en á góðum degi eru það 50 til 60 sem eru merktir. Þegar mest var merkt voru það 135 fuglar sem voru merktir sama daginn og var það í fyrra.</description>
      <alt>Lóan</alt>
Margir fallegir staðir á leiðinni norður í Hrómundarey
      <description>Fyrsta ferð Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu á þessu ári var farin í gær sunnudag í Hrómundarey í Álftafirði. Um 38 manns á 12 jeppum tóku þátt í ferðinni. Við vorum heppin með veður og ferðin tókst í alla staði mjög vel sagði Jón Stefán Friðriksson, færð var fín eftir sandinum og virkilega gaman að fara þarna og margir fallegir staðir á leiðinni norður í Hrómundarey. Þegar kom nokkuð áleiðis eftir sandinum ókum við fram á tundurdufl sem var að mestu á kafi í sandinum alveg á akstursleiðinni og eftir útlitinu að dæma gæti það verið virkt. Þegar út í Hrómundarey kom voru systurnar Magga og Ragna Pétursdætur með ýmsan fróðleik fyrir okkur um svæðið þarna  sem þær höfðu tekið saman og nestinu var að sjálfsögðu gerð góð skil. Búið er að láta Landhelgisgæsluna vita um duflið.</description>
Mikil ásókn í að læra ensku
      <description>Í haust og vetur hafa verið haldin 3 námskeið í ensku á vegum Þekkingarnetsins. Fyrir jól voru tveir byrjendahópar og í byrjun janúar fór einn framhaldshópur af stað Bryndís Víglundsdóttir er kennari á öllum námskeiðunum. Bryndís hefur langa reynslu af kennslu á öllum skólastigum en nú í seinni tíð hefur hún einkum kennt fullorðnu fólki hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Námskeið Bryndísar hafa mælst vel fyrir og þykja kennsluaðferðir hennar henta fullorðnu fólki svo vel að skorað hefur verið á okkur að bjóða upp á eitt byrjunarnámskeið í viðbót. Þekkingarnetið ætlar nú að bregðast við þessum áskorunum með því að bjóða upp á eitt námskeið enn fyrir byrjendur og hefst það þriðjudaginn 27. mars n.k. Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeiðið eða fá nánari upplýsingar geta haft samband við Ragnhildi Jónsdóttur hjá Þekkingarnetinu í síma 478 1595 eða 8916732.</description>
Þrykkjurokk 007. Haldið ykkur fast.
      <description>Fastur liður í starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar er ÞRYKKJUROKKIÐ. Þar koma fram unglingahljómsveitir sem eru að stíga á svið í fyrsta skipti og sveitir sem eru orðnar nokkuð sjóaðar. Fimmtudaginn 29. mars verður ÞrykkjuRokk 007 haldið í Sindrabæ og eru allir velkomnir þangað. Skráning hljómsveita og tónlistaratriða er hafin hjá Ottó Marvin í síma 848-3565. Það er því um að gera að bjalla og skrá sig NÚNA. Nú á ein Hornfirsk hljómsveit eftir að spreyta sig í Músiktilraunum, það er DIXON, kemur hún fram í kvöld ásamt níu örðum hljómsveitum. Eru þeim sendir þungir rokkstraumar í von um gott gengi. NÓBÓ og HYDRA hafa lokið þátttöku sinni í tilraununum,stóðu sig vel en komust ekki áfram í úrslitakeppnina að þessu sinni.</description>
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
      <description>Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Djúpavogskirkju 21. mars. Í fyrsta sæti varð Svanhvít Helga Jóhannsdóttir úr Grunnskólanum í Hofgarði. Í öðru sæti varð Sandra Björg Gunnarsdóttir Hafnarskóla, í þriðja sæti varð Anna Mekkín Reynisdóttir Hafnarskóla og sérstaka aukaviðurkenningu hlaut Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir. Keppnin var í alla staði glæsileg og vel utan um hana haldið af skipuleggjendum. Á meðan dómarar réðu ráðum sínum léku nemendur Tónskóla Djúpavogs og Tónskóla A-Skaftafellssýslu nokkur lög. Í hléi bauð Foreldrafélag Grunnskóla Djúpavogs og Mjólkursamsalan upp á veitingar. Sparisjóður Hornafjarðar gaf verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og Edda- útgáfa gaf öllum þátttakendum bók í viðurkenningarskyni. Einnig gaf Skólaskrifstofan keppendum og þjálfurum þeirra blóm og gerði okkur kleyft að komast á milli staða. Formaður dómnefndar var Jón Hjartarson. Hann var mjög ánægður með frammistöðu allra keppenda og sagði þá einstaklega jafna og góða og að dómnefndin hefði átt mjög erfitt með að gera upp á milli þeirra.</description>
Hvað tefur varanlegar framkvæmdir við þjóðveg 1 á Austurlandi?
      <description>Í ljósi þeirrar umræðu sem undanfarið hefur átt sér stað um vegamál og vegagerð á Íslandi vegna þeirrar samgönguáætlunar sem nú liggur fyrir Alþingi getur vegfarandi sem leið á um Suð-Austurland og Austurland ekki varist þeirri spurningu. Hvers vegna er ekki lögð sérstök áhersla á að ljúka malbikun hringvegarins? Hvers vegna er ekki þegar í stað hafist handa um gerð jarðgangna undir Lónsheiði eða gangnagerð úr Lóni og í Álftafjörð þar sem heppilegast væri að gera jarðgöng milli þessara staða til þess að hægt sé að afleggja sem allra fyrst þann stórhættulega veg sem nú er farinn um Hvalnes- og Þvottárskriður ( fjórir km. malarvegur ) svo ekki sé nú minnst á það öryggi fyrir vegfarendur sem felst í því að losna við að fara um veðravítið sem Hvaldalur er. Á því svæði sem þjóðvegur 1 liggur um Hvaldal er eitt mesta veðravíti á landinu og mörg óhöpp hafa orðið þar. Bílar hafa fokið, rúður hreinsast úr bílum, tjaldkerrur, felli- og hjólhýsi bókstaflega splundrast í rokkviðum sem koma eins og fellibyljir út dalinn sópa með sér möl og sandi og enda í sælöðri á hafi úti.</description>
7. bekkur í Hafnarskóla vann til verðlauna
      <description>Á degi stærðfræðinnar 2. febrúar síðastliðinn tóku nemendur í 7. bekk Hafnarskóla þátt í þrautakeppni Flatar, Flötur sem eru samtök stærðfræðikennara á Íslandi sem hafa það m.a. að markmiði að veita stuðning við þróunarstarf á sviði stærðfræðimenntunar, að efla menntun stærðfræðikennara, að skapa vettvang fyrir umræður um stærðfræðikennslu og að veita kennurum stuðning við að takast á við ný og breytt viðfangsefni og vinnubrögð.  Með þessum hætti vilja samtökin sameina íslenska stærðfræðikennara á öllum skólastigum í starfi, umræðum og skrifum um stærðfræðimenntun. Í þrautarkeppninni tóku alls 112 bekkir þátt, flestar lausnir voru réttar og því þurftir að draga úr réttum lausnum vegna verðlaunaveitinga. Það er skemmst frá því að segja að 7. bekkur í Hafnarskóla vann til verðlauna og fékk m.a. sudoku spil í verðlaun og stærðfræðiævintýrið Kefrenspýramídinn.</description>
      <alt>7. bekk Hafnarskóla</alt>
Ístölt Austurlands og vetrarleikar Hornfirðings þann 24. mars n.k.
      <description>Síðustu helgina í febrúar fjölmenntu hestamenn með gæðinga sína austur á Hérað til að taka þátt í Ístölti Austurlands 2007 sem haldið var að Eiðavatni. Þar voru mættir til leiks margir landsþekktir knapar og hestar, alls voru skráð um 120 hross til keppni og þar af komu um 20 hross og 14 knapar frá Hornafirði sem tóku þátt í keppni í hinum ýmsum flokkum. Nokkrir hornfirðingar komust í verðlaunasæti, Jóna Stína Bjarnadóttir á Ham frá Hamrahlíð og Torfi Sigurðsson á Freyju frá Ártúni lentu í 4. og 5. sæti í úrslitum ungmennaflokki, Pálmi Guðmundsson var í 2. sæti í úrslitum í áhugamannaflokki á Baun frá Kúskerpi, Kristján Björgvinsson (Venni) lenti í 5. sæti í úrslitum unghrossaflokki á Korða frá Kanastöðum og 2-4 sæti í skeiði á Flautu frá Kanastöðum sem er í eigu Geirs Þorsteinssonar. Einnig var hryssa í eigu Marteins Gíslasonar og Pálma, Gullbrá frá Stokkseyrarseli  í 2. sæti í unghrossaflokki, knapi á henni var Lena Zielienski. Frábær árangur hjá hornfirðingum, til hamingju.</description>
Þorrablótsferð 4x4
      <description>Þorrablót 4x4 klúbbsins var halið helgina 9-11 mars. Blóta átti í Snæfelli.  Upp úr hádegi á föstudag lögðu nokkrir vaskir félagar af stað,  nota átti daginn og njóta víðáttunnar og veðurblíðunnar og þjóta á farkostum sínum um Öxi og annars staðar á hálendi Fljótsdalshéraðs .Ekki voru veðurguðirnir hliðhollir í þetta skiptið, þegar upp á Fljótsdalsheiði kom var komin öskubylur og mikil ófærð. Ferðin í Snæfell sóttist því seint. Víkjum nú að götubílahópnum sem lagði af stað frá Höfn kl.18.00 og ók sem leið liggur  veg eitt að Hallormsstað.  Þegar þangað kom bárust þær fréttir að fyrri hópurinn væri í vandræðum í vitlausu veðri og ófærð og ráðlögðu þeir okkur að leggja ekki á heiðina. Ákveðið var því að fá gistingu á Skipalæk og sjá til, til morguns.Laugardagsmorguninn rann upp bjartur og fagur, pökkuðum við saman sem vorum í byggð og ókum af stað í Snæfell. Er upp á heiðina kom var okkur vísað frá vegna ófærðar.</description>
Mikill kraftur í starfi eldri borgara
      <description>Aðalfundur Félags aldraðra á Hornafirði var haldinn s.l.sunnudag í félagsmiðstöðinni Ekrunni. Formaður félagsins Örn Eriksen stýrði fundi og fór yfir starfsemi þess á milli aðalfunda. Starfið var fjölbreytt að vanda, tekið í spil, farið í gönguferðir, boccía, snóker, smíðað, skorið út og konurnar grípa í handavinnu ýmiskonar. Boðið var upp á leikfimitíma sem Ágústína Halldórsdóttir stjórnar og eins sundleikfimi sem Matthildur Ásmundardóttir leiðir. Kór félagsmanna Gleðigjafar starfaði af miklum krafti undir öruggri stjórn Guðlaugar Hestnes. Hefur kórinn gefið út vel lukkaðan geisladisk með söng sínum. Ferðalög er hluti af starfinu og eins voru haldnar samverustundir í Ekrunni en þar er félagið  með starfsemi sína. Þá má ekki gleyma öðrum skemmtunum eins og  jólafagnaði og þorrablóti ofl. Alltaf er öðru hvoru boðið upp á námskeið fyrir félagsmenn.</description>
Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði
      <description>Annað kvöld verður haldin árshátíð Grunnskólans í Hofgarði þ.e. föstudagskvöldið 16. mars og hefst árshátíðin kl. 20:00. Nemendur flytja dagskrá sem er leikin, lesin og sungin og á eftir verða kaffiveitingar sem foreldrarnir sjá um. Allir velunnarar skólans eru velkomnir, en vegna veitinga væri betra að hafa hugmynd um þátttöku í síma skólans 478 1672 eða 478 1760 (Hjá Pálínu).</description>
Flottur árangur í forritunarkeppninni
      <description>Þeir Haukur og Hrafn áttu aldeilis erindi til Reykjavíkur um síðustu helgi en þar tóku þeir þátt í forritunarkeppni framhaldsskólanna sem Háskólinn í Reykjavík stóð fyrir. Keppninni er skipt í þrjá styrkleikaflokka; afla, beta og delta. Alfa er fyrir þá öflugustu sem jafnvel hafa unnið við forritun í einhvern tíma. Beta er fyrir þá sem þekkja til undirstöðuatriða í forritun og delta er fyrir byrjendur. Haukur og Hrafn voru í beta deildinni  og gekk ágætlega. Þeir voru bara tveir i liði en öll önnur lið voru skipuð þremur keppendum.
|nl|Eftir annan hluta keppninnar voru þeir í öðru sæti en enduðu í þriðja sæti í lokin enda tveir að vinna þriggja manna verk. Fyrir þriðja sætið fengu þeir í verðlaun pening, forrit og bók.</description>
UMF. Máni býður til afmælisveislu
      <description>Á morgun laugardaginn 10.mars kl.16.00 býður ungmennafélagið Máni til afmælisveislu í Mánagarði og eru allir sem vilja eiga góða stund saman og minnast 100 ára afmælis félagsins velkomnir. Við verðum þarna með svolitla dagskrá, ávörp og ræður segir Hjalti Egilsson, einnig verður danshópur Mána með dansatriði, Sveitalubbarnir spila nokkur lög einnig spila krakkar úr Tónskólanum. Síðan verða flutt söngatriði úr Fiðlaranum á þakinu sem sýndur hefur verið við fádæma hrifningu.  Upphafsmaður að stofnun ungmennafélagsins var Bjarni Guðmundsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri á Höfn . Bjarni hafði kynnst ungmennafélagshreyfingunni,sem þá var ný, þegar hann var í skóla á Akureyri 1905 og um vorið þegar hann kemur heim fær hann nokkra unga menn til liðs við sig og byrjuðu þeir á að stofna málfundarfélag. Þann 27. jan. 1907 var svo ungmennafélagið formlega stofnað og voru stofnendur þess þeir Bjarni Guðmundsson, Sigurður Arngrímsson, Þorbergur Þorleifsson og Gunnar Jónsson, stofnfélagar voru 20.</description>
Úrslit í skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar
      <description>Nú er skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarskóla lokið en hún fór fram í Nýheimum á miðvikudag. Þar kom í ljós hvaða sjö nemendur halda áfram keppni en lokahátíðin fer fram á Djúpavogi 21. mars kl. 15:oo. Þeir nemendur sem komust áfram eru: Anna Mekkín Reynisdóttir, Aron Birkir Óttarsson, Kolbrún Birna Ólafsdóttir, Kolbrún Lilja Skúladóttir, Sandra Björg Gunnarsdóttir, Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Þórhildur Sigurðardóttir.</description>
Náttúruskóli í Sandaseli
      <description>Undirbúningur að opnun Náttúruskóla í Skaftafelli er vel á veg kominn. Við vorum á dögunum að taka þátt í að stofna heildarsamtök Náttúruskóla á landinu segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, þá hittust allir aðilar sem eru í þessum náttúruskólaverkefnum og eru  nú komin með heildarsamtök. Við verðum svo að læra hvort af öðru vegna þess að það eru allt einyrkjar á öllum stöðunum. Sérhæfing okkar hér verður vatnið, jöklarnir og landmótun þeirra. Skólinn fær inni í Sandaseli í Skaftafelli, þar er verið að klæða og lagfæra  innan dyra í vestustu álmunni og þar fáum við frábæra aðstöðu  fyrir náttúruskólann. Við stefnum að því að taka á móti skólahópum í vor og hugmyndin er að vera með skólann á vorin og haustin og taka á móti bekkjareiningum.</description>
      <alt>Sandasel</alt>
Nýr bátur Dögg SF 18 bætist í flotann
      <description>Nýr línuveiði bátur, Dögg SF 18 kom til Hornafjarðar í gærkvöldi og eigandi bátsins  er Vigfús Vigfússon á Höfn. Þetta er bara trillubátur sagði Vigfús þegar hann var spurður um nýja bátinn sem er Kleopatra 38, yfirbyggður með 700 h.vél, beitningavél  og öllum tilheyrandi siglingabúnaði. Beitningakerfi er fyrir 17 þús. króka. Ganghraði bátsins er 17-18 mílur.  Vigfús sagðist hafa fengið ,,kaldaskít´´ á leiðinni frá Reykjavík til Hafnar sem hefði bara verið betra, báturinn hefði reynst vel  og hann væri harðánægður með sitt nýja skip.
|nl|</description>
      <alt>Dögg SF18</alt>
Hátt í 200 mann mættu á Góugleði í Hofgarði
      <description>Laugardagskvöldið 3. mars var haldin Góugleði í Hofgarði.  Að vanda var vel mætt en hátt í 200 mann snæddu veislumat sem bræðurnir Andri og Benedikt framreiddu.  Yfir borðhaldi fór Bjarni Harðarson með nokkur orð og aðrir stýrðu fjöldasöng.  Að loknu borðhaldi var flutt heimgerða dagskrá sem samin og flutt var af 10 manna skemmtinefnd sem samanstóð af heimamönum og brott fluttum Öræfingum,  að lokinni dagskrá steig Síðasti sjéns á svið og spilaði fyrir dansi.  Síðan þegar langt var liðið á nóttina snéru allir saddir og sælir heim.  Í næstu Góunefnd 2008 verða: Hafdís Roysdóttir og Jóhann Þorsteinsson, Anna María Ragnarsdóttir og Jón Benediktsson, Jónína Aradóttir,  Eva Bjarnadóttir, Björgvin Sigurjónsson og Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, Unnur Bjarnadóttir, Þorlákur  Magnússon.</description>
Þeir eru klárir í þessu og ganga hreint til verka
      <description>Um helgina sl. byrjuðu Hjarðarnesbræður (Rósaberg) á malarflutningi úr ,,sundlaugarpúðanum´´ yfir á þann hluta íþróttavallarins sem búið var að skafa ofanaf. Verkið hefur skotgengið og á Jón Kjartansson von á að lokið verði á morgun að færa þessa 5.500 rúmm, af möl sem áætlað er að þurfi til að hækka völlinn. Púðinn reyndist hinsvegar mun efnismeiri en ætlað var eða um 12 þús. rúmmetra og sagði Jón að verið væri að skoða hvar það sem eftir væri yrði sett. Þegar malarpúðinn verður farinn verður hægt að fara að huga að útboði fyrir sundlaugina segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.</description>
Rússneska rörið á Morsá
      <description>Það verður ýmislegt undan að láta þegar náttúruöflin eru í ham og svo varð með ,,Rússneska rörið´´ göngubrúna yfir Mörsá sem sett var upp fyrir tveim árum. Í stórrigningunni fyrir jólin varð Morsá sem stórfljót og gróf úr bökkunum við brúna sem þá losnaði og færðist um 500 metra niður með ánni. Til stóð að setja grjót vörn við brúna og átti að fara í það fyrir jólin  og hefði það verið búið  væri brúin á sínum stað segir Ragnar Frank í Skaftafelli en nú verður á næstunni farið í að setja brúna á sinn stað og trausta grjótvörn við bakkana. Gera þarf við brú við Morsárlón og eins þarf að byggja upp varnargarða við stóru brúna á Morsá en þeir eru í umsjá Vegagerðarinnar.</description>
Söngskemmtun og sagnastund í Þórbergssetri um næstu helgi
      <description>Næstkomandi sunnudag 11. mars kl. 14:00 verður dagskrá í Þórbergssetri í tilefni af afmælisdegi Þórbergs Þórðarsonar 12. mars. Kvennakór Hornafjarðar ætlar að syngja nokkur lög eftir að hafa dvalist á Hala yfir helgina og stundað söngæfingar í Þórbergssetri. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur verður með bókmenntaspjall og heimamenn á Hala verða með söguefni úr Suðursveit tengt eyðibýlum, sögu og mannlífi fyrr á öldum. Einnig verður farið í sagnasjóð Steinþórs á Hala og hlustað á nokkrar gamlar upptökur sem varðveist hafa í Árnastofnun. Opið verður inn á sýningar í Þórbergssetri. Í fjósbaðstofunni verða til sýnis gamlar bækur útgefnar á 19. öld, áritaðar af Þórði Steinssyni og Benedikt Þorleifssyni  á Hala. Vonast er eftir að  nærsveitungar og Hafnarmenn skreppi og verði þátttakendur  í sagnastund í Þórbergssetri.</description>
Pizzasala hafin á Ósnum að nýju eftir brunann
      <description>Síðast liðinn föstudag hófst pizzusala á Ósnum en það er nú búið að taka eldhúsið í gegn  sem slapp nánast við allar reykskemmdir og því er nú hægt að afgreiða þar pizzur. Að sögn Gísla Vilhjálmssonar eins eiganda Hótels Hafnar þá verður til að byrja með aðeins um heimsendingu að ræða því enn er verið að taka salinn á Ósnum í gegn. Enduruppbygging á Hótelinu er nú að hefjast eftir mikla og þrotlausa vinnu við hreinsun og reykræsingu eftir brunann sem varð á hótelinu í 7. febrúar s.l. Undanverið hafa eigendur verið að velja og kaupa inn ný húsgögn í Hótelið. Að sögn Gísla þá er stefnt er að því að opna hótelið í lok apríl að öllu óbreyttu.</description>
Glæsileg opnunartilboð hjá Nettó
      <description>Á morgun föstudag kl 12.00 verður Nettó-verslunin í Miðbæ formlega opnuð og það með glæsibrag. Til að geta aðeins upplýst lesendur vefsins um þau kjarakaup sem bíða þeirra á morgun báðum við Gunnar Egil rekstrarstjóra að upplýsa hvað væri það helsta og sagði hann þar mjög góð tilboð á fjölda vörutegunda og margt á hálfvirði t.d. kjúklingabringur, heilir kjúklingar og vínarpylsur á 50% afslætti, kjúklingavængir kryddaðir á kr. 99.00, lambafille og ungnauta kjöthakk á 40% afsl. Góðgætið á sælgætisbarnum er á 70% afsl. og konfekt í 1 kg pk. á mjög góðu verði.</description>
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli fær 50 mkr. til að lagfæra aðstöðuna
      <description>Þjóðgarðinum í Skaftafelli hefur á fjárlögum verið úthlutað 50 milljónum kr. til að lagfæra aðstöðuna við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. Framkvæmdir eru þegar hafnar og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að búið sé að hreinsa burt gömlu hreinlætistækin og nú sé húsið hreinlega aðeins fokhelt, síðan verður allt innréttað upp á nýtt einnig verður þakið endurnýjað. Það var vissulega kominn tími á að endurnýja og bæta alla aðstöðu í þjónustumiðstöðinni því þetta er orðið gamalt og lúið. Síðan verður tjaldsvæðið lagað og endurbætt og rafmagni komið þangað. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli verður 40 ára á þessu ári og verður haldið upp á afmælið í september með magnaðri veislu eins og Ragnar orðaði það. Þó listi yfir afmælisgesti  sé ekki fullgerður er ljóst að Forseti Íslands og forsetafrú verða meðal afmælisgesta.</description>