Þrjár sýningar undir sama þaki.
Dagana 20. ? 22. apríl 2007 verður stór sýning haldin í Fífunni í Kópavogi. Að þessu sinni sameinast á einn stað þrír aðilar sem áður hafa haldið hver sína sýningu. Þetta eru Ferðasýningin 2007, Golf á Íslandi 2007 og Sumar 2007. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er gert hérlendis en er mörg dæmi eru um slíkt erlendis. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru Ferðamálasamtök Íslands, Golfsamband Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) Stefnt er að því að hér verði um alþjóðlega sýningu að ræða sem laðar að erlenda gesti til að kynna sér Ísland, íslenska ferðaþjónustu og ferðamál almennt. Hér er um metnaðarfullan viðburð að ræða sem gestir geta kynnt sér flest það er snýr að útivist, ferðalögum og tómstundum.
Föstudagurinn er einkum ætlaður fagaðilum þ.e. þeim sem eru að kynna sér vörur og þjónustu til endursölu en á laugardag og sunnudag er sýningin opin almenningi frá 11.00 ? 18 báða dagana og einnig á föstudag milli 17.00 og 20.00
Markmið sýningarinnar er:
Að auka áhuga Íslendinga á ferðamennsku/ferðaþjónustu á Íslandi
Að veita upplýsingar um fræðslu, menntun og umhverfismál
Að kynna framboð á íslenskri ferðaþjónustu fyrir almenningi og fagaðilum
Að kynna framboð ferða til útlanda fyrir Íslendingum
Að kynna möguleika golfíþróttarinnar hérlendis sem erlendis í tengslum við ferðalög.
Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu hefur ákveðið að vera með kynningu á ferðaþjónustu og viðburðum í ríki Vatnajökuls á sýningunni. Annars vegar í bás með Ungmennafélagi Íslands þar sem jafnhliða Unglingalandsmóti 2007 verður kynnt afþreying, viðburðir og fleira á svæðinu sem landsmótsgestir gætu haft áhuga á að njóta samhliða því sem þeir koma á unglingalandsmótið um verslunarmannahelgina. Hins vegar verðum við að venju í sameiginlegum bás fyrir Austurland allt. Þar verður alhliða kynning á ferðaþjónustu hvers konar.
Við viljum hvetja alla ferðaþjónustuaðila og aðra þá sem eru með einhvers konar þjónustu eða viðburði sem þeir telja að eigi erinda á slíka sýningu til að senda okkur kynningarefni og eins ef einhverjir vilja leggja fram vinnu á sýningunni biðjum við þá hina sömu að hafa samband við Guðrúnu Jónsdóttur í síma 4708050 eða 8672050. Einnig er hægt að senda póst á netfangið gunna@hornafjordur.is
Einnig viljum við hvetja alla þá sem verða staddir á höfuðborgarsvæðinu þessa helgi að heimsækja sýninguna. Þarna verða upplýsingar um allt það helsta sem tengist ferðalögum og útivist og einstakt tækifæri til að afla sér upplýsinga fyrir ferðalög á næstu mánuðum eða árum. Eða ef fyrirhugað er að ráðast í byggingu á sumarbústað.
Reiknað er með að 20 þúsund manns komi á sýninguna.





Skrifa athugasemd