Samfylkingin heldur aðalfund sinn í kvöld
Í kvöld kl. 20:00 heldur Samfylkingin á Hornafirði aðalfund sinn í húsi Vökuls við Víkurbraut. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem fulltrúar félagsins á landsfund Samfylkingarinnar 13. og 14. apríl verða kosnir. Gestir fundarins verða frambjóðendur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, þau Róbert Marshall og Guðný Hrund Karlsdóttir. Róbert er í þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar en Guðný í því fjórða. Þau ætla að nota tækifærið á þessum fundi til þess að kynna drög að stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar.
Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði hvetur allt áhugafólk um stjórnmál til þess að mæta á fundinn.





Skrifa athugasemd