Mars
Dufl
Dufl
Ágúst Mg, Einar Sigurjónsson og Sigurjón Einarsson en þeir m.a. í hópnum sem fann duflið. (@Sigurður Á)
Mynd 1 af 3
1 2 3

27.03.2007 Mars

Ferðalangar brugðust rétt við er þeir fundu tundurdufl

Ferðalangar úr Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu sem fundu tundurdufl á Starmýrarrifi við Álftafjörð eystri brugðust hárrétt við en þeir tóku stað á duflinu og létu varðstjóra Landhelgisgæslunnar í Vaktstöð siglinga strax vita. Á sunnudaginn fékk Vaktstöð siglinga tilkynningu um að ferðalangar hefðu keyrt fram á tundurdufl á Starmýrarrifi við Álftafjörð eystri. Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar fékk upplýsingar hjá ferðalöngunum og myndir sem staðfestu að um breskt tundurdufl úr seinni heimstyrjöldinni var að ræða. Við athugun á duflinu sem fannst á sunnudaginn kom í ljós að reynt hafði verið að brenna sprengiefnið úr því en það ekki tekist fullkomlega. Sprengjusérfræðingur sá um að eyða leyfum af sprengiefni úr því. Er sprengjusérfræðingarnir voru á leiðinni að duflinu keyrðu þeir fram á annað dufl og grófu það upp. Það reyndist vera tómt.

Að sögn Sigurðar Ásgrímssonar sprengjusérfræðings Landhelgisgæslunnar hafa mörg tundurdufl fundist þarna á sandinum í gegnum tíðina. Flest hafa verið grafin í sandinn og í mjög góðu ástandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica