Mars
Uppskipun hótelsins
Uppskipun hótelsins
Uppskipun hótelsins

27.03.2007 Mars

Uppskipun flutningadeildarinnar á heilu hóteli

Það er ekki á hverjum degi sem flutningadeild KASK skipar upp heilu hóteli en það stendur yfir þessa stundina. Að sögn Björns Jónssonar hjá flutningadeildinni þá kemur skipið með hótelið frá Noregi og er það í 79 einungum. Einingarnar eru settar á flutningabíl sem flytur þær til Núps sem er rétt austan við Kirkjubæjarklaustur og verður Hótelið rísa þar. Skipið lenti í aftakaveðri á leiðinni frá Noregi og fóru þrjár einingar í sjóinn. Eigandi hótelsins er fyrirtækið Íslandia Hótel sem er til heimilis í Reykjavik. Hótelið verður 60 berbergja hótel, fullbúið með veitingaaðstöðu og að sögn Vilhjálms Sigurðssonar eins eiganda fyrirtækisins þá er þetta eitt af mörgum hótelum sem fyrirtækið fyrirhugar er að reisa á landsbyggðinni.

Hótelið opnar 1. júní og er nær fullbókað þetta sumarið og er þegar byrjað að bóka fyrir árið 2008.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica