Mars
Ferð í Hrómundarey í Álftafirði
Ferð í Hrómundarey í Álftafirði
Ferð í Hrómundarey í Álftafirði (JSF)
Mynd 6 af 7
1 2 3 4 5 6 7

27.03.2007 Mars

Margir fallegir staðir á leiðinni norður í Hrómundarey

Fyrsta ferð Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu á þessu ári var farin í gær sunnudag í Hrómundarey í Álftafirði. Um 38 manns á 12 jeppum tóku þátt í ferðinni. Við vorum heppin með veður og ferðin tókst í alla staði mjög vel sagði Jón Stefán Friðriksson, færð var fín eftir sandinum og virkilega gaman að fara þarna og margir fallegir staðir á leiðinni norður í Hrómundarey. Þegar kom nokkuð áleiðis eftir sandinum ókum við fram á tundurdufl sem var að mestu á kafi í sandinum alveg á akstursleiðinni og eftir útlitinu að dæma gæti það verið virkt. Þegar út í Hrómundarey kom voru systurnar Magga og Ragna Pétursdætur með ýmsan fróðleik fyrir okkur um svæðið þarna sem þær höfðu tekið saman og nestinu var að sjálfsögðu gerð góð skil. Búið er að láta Landhelgisgæsluna vita um duflið.

Næsta ferð Ferðafélagsins verður 4.apríl. Þá verður farið í síðdegisgöngu um Þinganesland í Nesjum, svona létt fjölskylduferð. Farið verður að Gálgakletti og Gvendarbrunnur skoðaður en í honum er vígt vatn. Leiðsögumaður í ferðinni verður Halldór Einarsson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica