Mars
Enskunámskeið Þekkingarnetsins
Enskunámskeið Þekkingarnetsins
Þátttakendur á enskunámskeiði Þekkingarnetsins ásamt Ragnhildi Jónsdóttur og Bryndísi Víglundsdóttur. (@ÞNA)

24.03.2007 Mars

Mikil ásókn í að læra ensku

Í haust og vetur hafa verið haldin 3 námskeið í ensku á vegum Þekkingarnetsins. Fyrir jól voru tveir byrjendahópar og í byrjun janúar fór einn framhaldshópur af stað Bryndís Víglundsdóttir er kennari á öllum námskeiðunum. Bryndís hefur langa reynslu af kennslu á öllum skólastigum en nú í seinni tíð hefur hún einkum kennt fullorðnu fólki hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Námskeið Bryndísar hafa mælst vel fyrir og þykja kennsluaðferðir hennar henta fullorðnu fólki svo vel að skorað hefur verið á okkur að bjóða upp á eitt byrjunarnámskeið í viðbót. Þekkingarnetið ætlar nú að bregðast við þessum áskorunum með því að bjóða upp á eitt námskeið enn fyrir byrjendur og hefst það þriðjudaginn 27. mars n.k. Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeiðið eða fá nánari upplýsingar geta haft samband við Ragnhildi Jónsdóttur hjá Þekkingarnetinu í síma 478 1595 eða 8916732.

Að lokum er gaman að geta þess að upp hefur komið sú hugmynd að ljúka þessari "enskuvæðingu" með því að fara í nokkurra daga ferð til London.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica