Mars
Stóra upplestrarkeppnin 2007
Stóra upplestrarkeppnin 2007
Stóra upplestrarkeppnin 2007 @Hafnarskóli

22.03.2007 Mars

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Djúpavogskirkju 21. mars. Í fyrsta sæti varð Svanhvít Helga Jóhannsdóttir úr Grunnskólanum í Hofgarði. Í öðru sæti varð Sandra Björg Gunnarsdóttir Hafnarskóla, í þriðja sæti varð Anna Mekkín Reynisdóttir Hafnarskóla og sérstaka aukaviðurkenningu hlaut Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir. Keppnin var í alla staði glæsileg og vel utan um hana haldið af skipuleggjendum. Á meðan dómarar réðu ráðum sínum léku nemendur Tónskóla Djúpavogs og Tónskóla A-Skaftafellssýslu nokkur lög. Í hléi bauð Foreldrafélag Grunnskóla Djúpavogs og Mjólkursamsalan upp á veitingar. Sparisjóður Hornafjarðar gaf verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og Edda- útgáfa gaf öllum þátttakendum bók í viðurkenningarskyni. Einnig gaf Skólaskrifstofan keppendum og þjálfurum þeirra blóm og gerði okkur kleyft að komast á milli staða. Formaður dómnefndar var Jón Hjartarson. Hann var mjög ánægður með frammistöðu allra keppenda og sagði þá einstaklega jafna og góða og að dómnefndin hefði átt mjög erfitt með að gera upp á milli þeirra.

Fyrir 11 árum var haldin upplestrarkeppni í Hafnarfirði og er það upphafið að þessari keppni sem nú er haldin á landsvísu. Skemmtileg hefð hefur skapast í kringum keppnina hér á suðausturlandi og er öruggt að hún er komin til að vera. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember hefst undirbúningur nemenda. Eftir áramót er haldin bekkjarkeppni og síðan fer fram skólakeppni en þá kemur í ljós hvaða keppendur fara og taka þátt í lokahátíðinni. Stóra upplestrarkeppnin er skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu þar sem nemendur kynnast bókmenntum og ljóðum á annan hátt en dags daglega. Þjálfun í upplestri og framsögn skiptir miklu máli því fátt er skemmtilegra en að hlusta á vel fluttan texta.

- Hafnarskóli

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica