Mars
7. bekk Hafnarskóla
7. bekk Hafnarskóla
7. bekk Hafnarskóla (@hafnarskoli.is)

21.03.2007 Mars

7. bekkur í Hafnarskóla vann til verðlauna

Á degi stærðfræðinnar 2. febrúar síðastliðinn tóku nemendur í 7. bekk Hafnarskóla þátt í þrautakeppni Flatar, Flötur sem eru samtök stærðfræðikennara á Íslandi sem hafa það m.a. að markmiði að veita stuðning við þróunarstarf á sviði stærðfræðimenntunar, að efla menntun stærðfræðikennara, að skapa vettvang fyrir umræður um stærðfræðikennslu og að veita kennurum stuðning við að takast á við ný og breytt viðfangsefni og vinnubrögð. Með þessum hætti vilja samtökin sameina íslenska stærðfræðikennara á öllum skólastigum í starfi, umræðum og skrifum um stærðfræðimenntun. Í þrautarkeppninni tóku alls 112 bekkir þátt, flestar lausnir voru réttar og því þurftir að draga úr réttum lausnum vegna verðlaunaveitinga. Það er skemmst frá því að segja að 7. bekkur í Hafnarskóla vann til verðlauna og fékk m.a. sudoku spil í verðlaun og stærðfræðiævintýrið Kefrenspýramídinn.

Myndir af þeim bekkjum sem fengu verðlaun verður m.a. að finna á heimasíðu Flatar http://flotur.ismennt.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica