Mars
Istolt_2007
Istolt_2007
Myndir frá Ístölti (ismyndir.com)

20.03.2007 Mars

Ístölt Austurlands og vetrarleikar Hornfirðings þann 24. mars n.k.

Síðustu helgina í febrúar fjölmenntu hestamenn með gæðinga sína austur á Hérað til að taka þátt í Ístölti Austurlands 2007 sem haldið var að Eiðavatni. Þar voru mættir til leiks margir landsþekktir knapar og hestar, alls voru skráð um 120 hross til keppni og þar af komu um 20 hross og 14 knapar frá Hornafirði sem tóku þátt í keppni í hinum ýmsum flokkum. Nokkrir hornfirðingar komust í verðlaunasæti, Jóna Stína Bjarnadóttir á Ham frá Hamrahlíð og Torfi Sigurðsson á Freyju frá Ártúni lentu í 4. og 5. sæti í úrslitum ungmennaflokki, Pálmi Guðmundsson var í 2. sæti í úrslitum í áhugamannaflokki á Baun frá Kúskerpi, Kristján Björgvinsson (Venni) lenti í 5. sæti í úrslitum unghrossaflokki á Korða frá Kanastöðum og 2-4 sæti í skeiði á Flautu frá Kanastöðum sem er í eigu Geirs Þorsteinssonar. Einnig var hryssa í eigu Marteins Gíslasonar og Pálma, Gullbrá frá Stokkseyrarseli í 2. sæti í unghrossaflokki, knapi á henni var Lena Zielienski. Frábær árangur hjá hornfirðingum, til hamingju.

Næstkomandi laugardag þann 24. mars verða haldnir vetrarleikar II hjá hestamannafélaginu Hornfirðingi að Stekkhól, keppni hefst kl. 14:00
Keppt verður í barna og unglingaflokki í tvígangi (tölt og brokk). Einnig verður keppt í ungmennaflokki ef næg þátttaka fæst, áhugamannaflokki og opnum flokki þar sem keppendur eiga að sýna tölt (fegurðartölt), brokk (frjáls hraði) og yfirferð á brokki, tölti, eða
skeiði.

Þann 21. apríl verður haldið opið töltmót ( íþróttakeppni) og Firmakeppni er einnig fyrirhuguð fljótlega þannig að það er nóg framundan hjá hestamönnum á Hornafirði.





> (sjá myndir frá Ístölti Austurlands á ismyndir.com)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica