Mars
Þorraferð 4x4 2007
Þorraferð 4x4 2007
Þorraferð 4x4 2007
Mynd 5 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

20.03.2007 Mars

Þorrablótsferð 4x4

Þorrablót 4x4 klúbbsins var halið helgina 9-11 mars. Blóta átti í Snæfelli. Upp úr hádegi á föstudag lögðu nokkrir vaskir félagar af stað, nota átti daginn og njóta víðáttunnar og veðurblíðunnar og þjóta á farkostum sínum um Öxi og annars staðar á hálendi Fljótsdalshéraðs .Ekki voru veðurguðirnir hliðhollir í þetta skiptið, þegar upp á Fljótsdalsheiði kom var komin öskubylur og mikil ófærð. Ferðin í Snæfell sóttist því seint. Víkjum nú að götubílahópnum sem lagði af stað frá Höfn kl.18.00 og ók sem leið liggur veg eitt að Hallormsstað. Þegar þangað kom bárust þær fréttir að fyrri hópurinn væri í vandræðum í vitlausu veðri og ófærð og ráðlögðu þeir okkur að leggja ekki á heiðina. Ákveðið var því að fá gistingu á Skipalæk og sjá til, til morguns.Laugardagsmorguninn rann upp bjartur og fagur, pökkuðum við saman sem vorum í byggð og ókum af stað í Snæfell. Er upp á heiðina kom var okkur vísað frá vegna ófærðar.

Nú voru góð ráð dýr. Hluti hópsins í Snæfelli, við húsnæðislaus á Egilsstöðum, mikil ófærð, spáin ekki góð fyrir sunnudaginn en veðrið gott. Slegið var á fundi og ákveðið að fá húsnæði fyrir allan hópinn á Skipalæk ná sambandi við þau sem voru í Snæfelli og fá þau til að koma til byggða og sameina hópinn og fara svo að leika sér. Allt gekk þetta eftir og upp úr hádegi var allur hópurinn komin saman á leið upp á Fjarðarheiði. Þegar þangað kom hleyptu allir úr og spóluðu út snjóauðnina. Ekið var út á Fjarðarheiðina ca miðjavega og ekið um Kötluhraun vestan við Bjólf að Endahnjúk og horft ofan í Seyðisfjörð síðan áfram upp á Dragafjall en þar er mjög víðsýnt. Sáum m.a.niður í Loðmundarfjörð, Dyrfjallafjallgarðinn, Héraðsflóann, Smjörfjöll og að sjálfsögðu glotti Snæfellið og Herðubreið við okkur í veðurblíðunni.Um kvöldið borðuðum við á Skipalæk og skemmtum okkur vel. Á sunnudagsmorguninn var svo farið inn í Fljótsdal að skoða stöðvarhúsið undir leiðsögn Sverris Sveinbjörnssonar. Fór hann með okkur inn í stöðvarrýmið þar sem vélarnar eru og sýndi okkur þar um allt . Þess má geta að nú er komið að því að prufukeyra vélarnar. Svo sennilega erum við þau síðustu sem fáum að skoða þessar tröllslegu vélar . Var þetta reglulega skemmtilegt og viljum við þakka Sverri kærlega fyrir. Upp úr hádegi var svo haldið heim, farið var yfir Öxi í fínu færi. Þegar komið suður í Álftafjörð var farið að hvessa af suð- vestri og í Hvaldalnum fengu nokkrir úr hópnum grjót á bílana sína og skemmdu þá. Alls voru þátttakendur 31 og 15 bílar í þessa ferð.



Takk fyrir helgina.

Ferðafélagi í þorrablótsferð 4x4.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica