Mikill kraftur í starfi eldri borgara
Aðalfundur Félags aldraðra á Hornafirði var haldinn s.l.sunnudag í félagsmiðstöðinni Ekrunni. Formaður félagsins Örn Eriksen stýrði fundi og fór yfir starfsemi þess á milli aðalfunda. Starfið var fjölbreytt að vanda, tekið í spil, farið í gönguferðir, boccía, snóker, smíðað, skorið út og konurnar grípa í handavinnu ýmiskonar. Boðið var upp á leikfimitíma sem Ágústína Halldórsdóttir stjórnar og eins sundleikfimi sem Matthildur Ásmundardóttir leiðir. Kór félagsmanna Gleðigjafar starfaði af miklum krafti undir öruggri stjórn Guðlaugar Hestnes. Hefur kórinn gefið út vel lukkaðan geisladisk með söng sínum. Ferðalög er hluti af starfinu og eins voru haldnar samverustundir í Ekrunni en þar er félagið með starfsemi sína. Þá má ekki gleyma öðrum skemmtunum eins og jólafagnaði og þorrablóti ofl. Alltaf er öðru hvoru boðið upp á námskeið fyrir félagsmenn.
Á aðalfundinum var ný stjórn kosin og er formaður hennar Gróa Ormsdóttir, aðrir í stjórn eru: Örn Eriksen, Björn Ólafsson, Jón Ingi Björnsson og Sigþór Guðmundsson. Gróa er fyrsta konan sem gegnir formennsku í félaginu. Samþykkt var á aðalfundinum að breyta nafni félagsins í Félag eldri Hornfirðinga. Félagsmenn eru nú 174 og hefur örlítið fækkað. Árgjald var ákveðið 1500 kr. Að venju var boðið upp á kaffi og heimabakkelsi að hætti íslenskra húsfreyja. Nýr formaður hefur ákveðið að vera til viðtals á skrifstofu félagsins í Ekrunni virka daga frá kl. 09:00 til 10:00. Fyrir hönd stjórnar hvetur formaðurinn fólk til að koma í Ekruna og nýta sér það sem boðið er upp á og ganga í félagið. Þetta er skemmtilegt og gefandi starf. Starfsemi félagsins er vel auglýst á Skjávarpinu, svo enginn þarf að missa af neinu.
Félag eldri Hornfirðinga -- FEH





Skrifa athugasemd