Mars
FAS_IMG_0133
FAS_IMG_0133
Haukur og Hrafn @fas

13.03.2007 Mars

Flottur árangur í forritunarkeppninni

Þeir Haukur og Hrafn áttu aldeilis erindi til Reykjavíkur um síðustu helgi en þar tóku þeir þátt í forritunarkeppni framhaldsskólanna sem Háskólinn í Reykjavík stóð fyrir. Keppninni er skipt í þrjá styrkleikaflokka; afla, beta og delta. Alfa er fyrir þá öflugustu sem jafnvel hafa unnið við forritun í einhvern tíma. Beta er fyrir þá sem þekkja til undirstöðuatriða í forritun og delta er fyrir byrjendur. Haukur og Hrafn voru í beta deildinni og gekk ágætlega. Þeir voru bara tveir i liði en öll önnur lið voru skipuð þremur keppendum.
Eftir annan hluta keppninnar voru þeir í öðru sæti en enduðu í þriðja sæti í lokin enda tveir að vinna þriggja manna verk. Fyrir þriðja sætið fengu þeir í verðlaun pening, forrit og bók.

Strákarnir eru að vonum kátir með ferðalag síðustu helgar. Þeir eru strax farnir að æfa fyrir keppnina á næsta ári og auglýsa hér með eftir þriðja manni.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica