Mars
Úrslit í skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar
Nú er skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarskóla lokið en hún fór fram í Nýheimum á miðvikudag. Þar kom í ljós hvaða sjö nemendur halda áfram keppni en lokahátíðin fer fram á Djúpavogi 21. mars kl. 15:oo. Þeir nemendur sem komust áfram eru: Anna Mekkín Reynisdóttir, Aron Birkir Óttarsson, Kolbrún Birna Ólafsdóttir, Kolbrún Lilja Skúladóttir, Sandra Björg Gunnarsdóttir, Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Þórhildur Sigurðardóttir.
Á mánudag fá lesarar í hendur lesefni fyrir lokahátíðina og hafa tækifæri til að æfa sig vel.





Skrifa athugasemd