Náttúruskóli í Sandaseli
Undirbúningur að opnun Náttúruskóla í Skaftafelli er vel á veg kominn. Við vorum á dögunum að taka þátt í að stofna heildarsamtök Náttúruskóla á landinu segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, þá hittust allir aðilar sem eru í þessum náttúruskólaverkefnum og eru nú komin með heildarsamtök. Við verðum svo að læra hvort af öðru vegna þess að það eru allt einyrkjar á öllum stöðunum. Sérhæfing okkar hér verður vatnið, jöklarnir og landmótun þeirra. Skólinn fær inni í Sandaseli í Skaftafelli, þar er verið að klæða og lagfæra innan dyra í vestustu álmunni og þar fáum við frábæra aðstöðu fyrir náttúruskólann. Við stefnum að því að taka á móti skólahópum í vor og hugmyndin er að vera með skólann á vorin og haustin og taka á móti bekkjareiningum.
Meðal markmiða með stofnun Náttúruskóla má t.d nefna:
- Að nýta hina stórbrotnu náttúru og þróa fræðsluefni og námskeið sem styðjast við nálægð vettvangsins.
- Að þróa fræðslu og kennslu um náttúrfræði og vistfræði fyrir almenning og sérstaka markhópa um leið og unnt er að prófa mismunandi starfsgrundvelli fyrir náttúruskóla og halda staðbundin fræðslunámskeið fyrir kennara.
- Að gefa nemendum á ólíkum skólastigum tækifæri að kynnast og vinna með náttúrunni og auka þekkingu á náttúrufræði og skilning á skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda.
Með tilliti til uppbyggingar á Vatnajökulsþjóðgarði má ætla að náttúruskóli komi til með að auka og efla enn frekar þá starfsemi sem nú þegar er í Skaftafelli, en um 800 nemendur koma árlega í fræðsluferðir þangað einnig heimsóknir í þjóðgarðinn og sýningar tengdar honum sem falla vel að markmiðum námskrár í náttúrufræðigreinum á ýmsum skólastigum. Þá ætti náttúruskólinn að styrkja starfsemi Jöklaseturs og aðsókn að Jöklasýningunni á Höfn.
Ragnar segir að næstu daga verði amerískir nemendur frá New York háskóla, sem eru grunnnámi í jöklafræðum, í heimsókn í Skaftafelli en sú heimsókn tengist ekki náttúruskólanum





Skrifa athugasemd