Mars
Nýr bátur Dögg SF 18 bætist í flotann
Nýr línuveiði bátur, Dögg SF 18 kom til Hornafjarðar í gærkvöldi og eigandi bátsins er Vigfús Vigfússon á Höfn. Þetta er bara trillubátur sagði Vigfús þegar hann var spurður um nýja bátinn sem er Kleopatra 38, yfirbyggður með 700 h.vél, beitningavél og öllum tilheyrandi siglingabúnaði. Beitningakerfi er fyrir 17 þús. króka. Ganghraði bátsins er 17-18 mílur. Vigfús sagðist hafa fengið ,,kaldaskít´´ á leiðinni frá Reykjavík til Hafnar sem hefði bara verið betra, báturinn hefði reynst vel og hann væri harðánægður með sitt nýja skip.
Fjöldi manns mætti niður á bryggju til að taka á móti bátnum þegar hann lagðist að bryggju í gær.





Skrifa athugasemd