Mars
Strákarnir hjá Rósaberg
Strákarnir hjá Rósaberg
Strákarnir hjá Rósaberg

06.03.2007 Mars

Þeir eru klárir í þessu og ganga hreint til verka

Um helgina sl. byrjuðu Hjarðarnesbræður (Rósaberg) á malarflutningi úr ,,sundlaugarpúðanum´´ yfir á þann hluta íþróttavallarins sem búið var að skafa ofanaf. Verkið hefur skotgengið og á Jón Kjartansson von á að lokið verði á morgun að færa þessa 5.500 rúmm, af möl sem áætlað er að þurfi til að hækka völlinn. Púðinn reyndist hinsvegar mun efnismeiri en ætlað var eða um 12 þús. rúmmetra og sagði Jón að verið væri að skoða hvar það sem eftir væri yrði sett. Þegar malarpúðinn verður farinn verður hægt að fara að huga að útboði fyrir sundlaugina segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.

Við erum mjög ánægðir með Jón og félaga, þeir eru snöggir að afgreiða þau verkefni sem þeir taka, eru klárir í þessu og ganga hreint til verka. Það er gott að hafa svona menn í heimabyggð sagði Haukur Ingi að lokum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica