Mars
Morsa_IMG_2818
Morsa_IMG_2818
Morsá

06.03.2007 Mars

Rússneska rörið á Morsá

Það verður ýmislegt undan að láta þegar náttúruöflin eru í ham og svo varð með ,,Rússneska rörið´´ göngubrúna yfir Mörsá sem sett var upp fyrir tveim árum. Í stórrigningunni fyrir jólin varð Morsá sem stórfljót og gróf úr bökkunum við brúna sem þá losnaði og færðist um 500 metra niður með ánni. Til stóð að setja grjót vörn við brúna og átti að fara í það fyrir jólin og hefði það verið búið væri brúin á sínum stað segir Ragnar Frank í Skaftafelli en nú verður á næstunni farið í að setja brúna á sinn stað og trausta grjótvörn við bakkana. Gera þarf við brú við Morsárlón og eins þarf að byggja upp varnargarða við stóru brúna á Morsá en þeir eru í umsjá Vegagerðarinnar.

Samið var við Héraðsverk um uppbyggingu varnargarðanna á Skeiðarársandi og eru þeir að undirbúa grjótnám við Virkisjökul.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica