Mars
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

05.03.2007 Mars

Söngskemmtun og sagnastund í Þórbergssetri um næstu helgi

Næstkomandi sunnudag 11. mars kl. 14:00 verður dagskrá í Þórbergssetri í tilefni af afmælisdegi Þórbergs Þórðarsonar 12. mars. Kvennakór Hornafjarðar ætlar að syngja nokkur lög eftir að hafa dvalist á Hala yfir helgina og stundað söngæfingar í Þórbergssetri. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur verður með bókmenntaspjall og heimamenn á Hala verða með söguefni úr Suðursveit tengt eyðibýlum, sögu og mannlífi fyrr á öldum. Einnig verður farið í sagnasjóð Steinþórs á Hala og hlustað á nokkrar gamlar upptökur sem varðveist hafa í Árnastofnun. Opið verður inn á sýningar í Þórbergssetri. Í fjósbaðstofunni verða til sýnis gamlar bækur útgefnar á 19. öld, áritaðar af Þórði Steinssyni og Benedikt Þorleifssyni á Hala. Vonast er eftir að nærsveitungar og Hafnarmenn skreppi og verði þátttakendur í sagnastund í Þórbergssetri.

Aðgangur er ókeypis, en sunnudagskaffi í boði fyrir 800 krónur. Sagnastund í Þórbergssetri verður árlegur viðburður í tengslum við afmælisdag Þórbergs 12. mars.

Helgina 17. til 18. mars næstkomandi verður síðan bridgekeppni og hrossakjötsveisla í Þórbergssetri og meðal annars koma bridgespilarar úr Reykjavík að etja kappi við heimamenn. Bridgehelgi verður einnig árlegur viðburður í Þórbergssetri og er haldin til að heiðra minningu Torfa Steinþórssonar frá Hala sem stóð fyrir bridgekeppni og hrossakjötsáti í Suðursveit á árum áður. Þátttaka tilkynnist í síma 478- 1078 eða 867- 2900.

Sjá nánar thorbergur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica