Glæsileg opnunartilboð hjá Nettó
Á morgun föstudag kl 12.00 verður Nettó-verslunin í Miðbæ formlega opnuð og það með glæsibrag. Til að geta aðeins upplýst lesendur vefsins um þau kjarakaup sem bíða þeirra á morgun báðum við Gunnar Egil rekstrarstjóra að upplýsa hvað væri það helsta og sagði hann þar mjög góð tilboð á fjölda vörutegunda og margt á hálfvirði t.d. kjúklingabringur, heilir kjúklingar og vínarpylsur á 50% afslætti, kjúklingavængir kryddaðir á kr. 99.00, lambafille og ungnauta kjöthakk á 40% afsl. Góðgætið á sælgætisbarnum er á 70% afsl. og konfekt í 1 kg pk. á mjög góðu verði.
Af sérvöru má nefna 20" sjónvörp á 14.990, 21" sjónvörp með dvd spilara á 22.990 og 28" sjónvörp á 24.990 og veruleg verðlækkun er á barnaleikföngum.
Við opnunina verður Fimleikadeild Sindra og Hornfirska Skemmtifélaginu, vegna Blúshátíðarinnar, afhentir styrkir frá Nettó kr 200.000 til hvors aðila. Boðið verður uppá kaffi og kökur og ætlar fimleikadeildin að aðstoða viðskiptavini Nettó t.d. við að setja í innkaupapokana. Um kl. 16 mæta blúsararnir með sitt blúsatriði.
Gunnar Egill segir að það sé alveg meiriháttar gaman að finna og sjá hvað allir hér eru ánægðir með nýju verslunina og hvað fólk hefur tekið því vel þó allt hafi verið óverðmerkt og ekki komið í hillur þegar það hefur komið að versla þessa dagana. Ólíkt öðrum Nettó verslunum nema á Akureyri er mikið af sérvöru hér og verður þetta nokkurskonar tilraun með það og ef vel gengur verður það tekið upp í öðrum verslunum.




Skrifa athugasemd