Þjóðgarðurinn í Skaftafelli fær 50 mkr. til að lagfæra aðstöðuna
Þjóðgarðinum í Skaftafelli hefur á fjárlögum verið úthlutað 50 milljónum kr. til að lagfæra aðstöðuna við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. Framkvæmdir eru þegar hafnar og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að búið sé að hreinsa burt gömlu hreinlætistækin og nú sé húsið hreinlega aðeins fokhelt, síðan verður allt innréttað upp á nýtt einnig verður þakið endurnýjað. Það var vissulega kominn tími á að endurnýja og bæta alla aðstöðu í þjónustumiðstöðinni því þetta er orðið gamalt og lúið. Síðan verður tjaldsvæðið lagað og endurbætt og rafmagni komið þangað. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli verður 40 ára á þessu ári og verður haldið upp á afmælið í september með magnaðri veislu eins og Ragnar orðaði það. Þó listi yfir afmælisgesti sé ekki fullgerður er ljóst að Forseti Íslands og forsetafrú verða meðal afmælisgesta.
Ragnar segir að nú vanti bara menn til að vinna við þessar framkvæmdir sem framundan eru og hann vonast eftir að geta fengið sem flesta héðan úr sýslunni, hér séu margir sem kunni vel til þessara verka.




Skrifa athugasemd